föstudagur, apríl 18, 2008

a-a-a-a-afrika

Jæja, freetown... hvar á ég að byrja? Ég sit í herberginu mínu sem er nú bara alveg mjög gott, það er fyrir utan risakakkalakkana sem berjast vid mig um yfirráð yfir svæðinu. Ég gefst alls ekki upp þó ég verði að viðurkenna að tveir skrækir og fullt af hjartatruflunum hafa átt sér stað hér innan veggja. Einn skrækurinn var þegar eitt af þessum peðum satans spilaði sig dauðan (það gamla trikk) í baðinu þegar ég ætlaði í sturtu og flaug svo beint á mig þegar ég ætlaði að taka hann upp, beint á mig! Einn skrækur. Hinn kom þegar ég var að bera annan út á pappírsblaði og leit af honum til að opna dyrnar og þegar ég leit aftur var hann horfinn. Annar skrækur. En sá var í alvörunni dauður og hafði bara dottið af blaðinu, svoldið glatað.
Allavega, alltaf gott að byrja blogg á góðri kakkalakkasögu! Ég semsagt lenti í freetown á mánudagskvöld. Fékk svo að frétta seinna að alþjóðlegi flugvöllurinn hér er við það að missa réttindin sín vegna þess að hann er svo hrikalega óöruggur, flugmennirnir bara slökkva á flugturninum og fljúga sjálfir inn þar sem engum er treystandi í flugturninum. Svo er ferja sem er alltaf að bila sem ferjar farþega frá flugvellinum í borgina, víst mjög hættulegt að taka hana eftir myrkur því þá sjá þeir ekki neitt. Ég semsagt tók ferjuna klukkan hálftvö um nótt vegna seinkunar. Svaf þó allan tímann, var bara mjög kósí, vissi þá ekkert af öllu þessu veseni. Flugferðin var mjög fyndin, meira eins og rúta. Allir að kjafta saman og segja sögur, fólk bara stóð í ganginum og sagði brandara. Hitti semsagt fullt af fólki í vélinni sem reyndar öll voru á leið út á land, eða bara í freetown í nokkra daga. Svo fóru líka einhverjir út í Dakar.


Vinnan er rosa fín, allir geggjað næs. Alltaf erfitt að byrja í nýrri vinnu samt, maður er annaðhvort aðgerðarlaus eða veit ekkert hvað er að ske. Ég var til dæmis bókuð á þrjá fundi í vikunni – ég hélt að einhver myndi koma með mér, en nei! Bara ég út í bæ á einhverjum fundum með tveimur útvarpsstöðum, og svo fullt af liði úr einhverju ráðuneytinu í dag sem byrjaði fundinn á að kynna mig sem consultant sem ætlaði að kynna eitthvað voða spennandi fyrir þeim, svo bara þögn og allir litu á mig . . . En unicef liðið sagði mér að ég myndi bara sitja fundinn og safna upplýsingum. Ég semsagt blaðraði um vináttusamband Ísland og Síerra Leóne og ég veit ekki hvað og hvað. Svo fékk ég að hitta sætustu krakka í heimi sem eru með útvarpsþætti, leikhús, skipuleggja allskyns viðburði, ræða stöðu mála í pólitík og efnahagsmálum og eru ráðuneytinu innan handar og allt hvaðeina. Mér fannst eins og krakkarnir sem ég skrifaði mastersritgerðina mína um hefðu bara sprottið fram úr síðunum beint fyrir framan mig, mig langaði mest til þess að knúsa þau öll í buff! Svo talaði ég heillengi við einn ráðuneytisgaurinn á leiðinni út (níunda hæð, lyftan biluð, ógessla heitt) um misrétti heimsins, kynþáttahatur, efnahagsstjórn og tribalisma. Hann var hinn hressasti, með mjög kúl skoðanir! Semsagt, góður dagur!

Allavega, reyni að segja inn einhverjar myndir bráðum,
óm

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Gott að fá fréttir frá þér. Farðu nú varlega.

20:35  
Blogger Tinnsi sagði...

Vááá, en spennandi hjá þér að vinna í aaafríku!! Gangi þér vel í vinnunni og góða skemmtun, og auðvitað, farðu varlega, engar fleiri rútuferðir um miðja nótt.

05:22  
Blogger Silja sagði...

Hah frábært, best að sofa hætturnar bara af sér. Spennandi mál. Gangi þér vel og skemmtu þér vel. Ekki fara of varlega, það gæti verið dáldið leiðinlegt...
Dauðsakna þín hér, það sárvantar einhvern sem getur drukkið bjór með mér og hlegið að fáránlegum orðum.

17:13  
Anonymous Nafnlaus sagði...

va hvad thetta er allt saman spennandi olof! gangi ther nu vel og fardu nu varlega! hlakka til ad heyra fleiri sogur....knus fra manchester

20:02  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra hvað allt gengur vel, þú spjarar þig vissulega vel í Afríku eins og alls staðar annars staðar. Hlakka síðan til að fá að lesa ritgerðina þína og komast rétt aðeins í kynni við börnin sem þú talar um.
Knús frá Óls og Emmu

01:31  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim