aftur til ástralíu
Jæja, eins mikil synd og það nú er að hafa ekki suðurhafsmennina lengur efst á blogginu þá er nú aldeilis kominn tími til að henda inn einni færslu þó meiraðsegja mamma sé örugglega hætt að kíkja hingað… gamla settið ætlar reyndar að kíkja í heimsókn í apríl, vonandi með fullar töskur af súkkulaði og lakkrís. Við munum skella okkur til Tasmaníu í ferðalag og svo munu þau þeysast upp og nidur strandlengjuna meðan ég sit í Brisbane og læri… uss!
ég er annars flutt inn í nýtt hús í Brisbane, í frábæru hverfi, rétt við ána. Bý með afar andlega sinnuðu fólki, sem talar mikid um spíritisma, stjörnur og heilun, ég hef nú örugglega bara gott af því… Reyndar er hverfið allt mjög hippalegt, grænmeti, jóga og tofu eins langt og augað eygir. Við skelltum okkur svo þrjár saman til Byron Bay um helgina sem er mekka hippans hér í ástralíu, syntum í sjónum, drukkum bjór og tékkuðum á öllu þessu svakalega heilbrigða, fallega fólki sem borðar bara lífrænt, er úti allan daginn og stundar massívt jóga… ég missti reyndar af gullnu tækifæri til þess að vera enn ólífrænni og vinna Cadbury egg í keppninni okkar Claire um hver sér fleiri Hollywood stjörnur þegar Perth vinkona mín sá Kate Hudson í lífrænt ræktuðu grænmetisbúðinni meðan við Etsuko biðum úti í bílnum, reynandi að fela fyrir hippunum bláa gróðurhúsaáhrifareykinn sem lagði út úr pústinu á 20 ára skrjóðnum sem Etsuko var nýbúin að fjárfesta í… Ég verð bara að svindla og kaupa mér mitt eigið Cadbury Cream egg!
Já, og svo fjar-reddaði Ragna mér inn á frábæra tónleika með Elbow um daginn hér í Bris, rosa gaman að hanga með Englendingum (þá sérstaklega manchesterbúum) í eitt kvöld, drekka bjór og fá smá frí frá þessum annars yndislegu áströlum sem fara allir í háttinn kl. tíu. Það var frábært að sjá danny og vera einu stigi frá Rögnu minni, að tala við einhvern sem eftir nokkra daga á eftir að tala við hana, fékk mig til að gera mér grein fyrir því að það er alltof langt að vera í burtu frá fólkinu mínu í tvö ár, alltof alltof langt.
Allavega, á þessum væmnu nótum kveð ég og skelli mér aftur í greinalestur…
hér eru svo nokkrar myndir frá fiji, strandferð til caqalai, fleiri myndir frá brjáluðu fossagöngunni og svo bara allskonar fijimyndir

5 Ummæli:
Takk fyrir gott blgg stelpan mín og strand myndir sem ylja í flensunni.Hlakka rosalega til að hitta þig. Mútta.
Djöfull ertu komin með gott tan.
þökk sé gatinu á ózónlaginu, það er ekki allt svo slæmt...
Hæ mín kæra
alltaf gaman að fylgjast með og vá, tíminn líður eitthvað svo hratt að bráðum bara sit ég með þér yfir einum köldum þar sem við ræðum um heima og geima. Saga varð 3 mánaða síðustu helgi og er bara algjört yndi. Við litla fjölskyldan erum á leið til Köben um helgina þar sem mamman og pabbinn ætla að sjá Arcade Fire á tónleikum á meðan föðursystir sér um Söguna en hún býr í DK.
knús og kossar from snowy Rvk
En skemmtilegar myndir. Gangi þér vel í lestrinum.
Knúz Ólsí
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim