nokkrar myndir
hér eru nokkrar myndir frá svaðilgöngunni (sjá síðustu færslu), myndunum var nappað af síðunni hennar helgu báru... helgin sem var að ljúka var öll hreinlegri, skellti mér á týpískt 'resort', með sundlaugarbar, strönd og túrkísbláu hafi, billjardborði og svo að sjálfsögðu fótboltaspili þar sem ég nýtti mér reynslu mína af spileríi við kötu (aka fíton meistara í eyðileggingu allra andstæðinga) og rúllaði þessum fijibúum upp! ha HA!
en allavega, myndir:

allir furðuhressir þrátt fyrir þyrna í tánum en allavega, myndir:


Við Peta að reyna að missa ekki skóna

regina sú þýska var spæld í byrjun en fann svo sinn innri hressileika

8 Ummæli:
Er þetta sú þýska eða þú, sem stendur í drullupollinum upp að mitti hahaha :-)
Guuð, gaman að fá svona ferskar fréttir, ég er jafnvel fyrst til að lesa þessa GLÆnýju færslu jess.
Ást og sakn
Ása
Aldeilis ævintýri, heyrðu þú verður að skila kveðju til Helgu Báru. Við vorum saman í mannfr. og á Grænlandi.
Knuz og kram
Ólsí
jú þetta er einmitt ég í drullupollinum... gaman að því!
:)
þú gerir mig svo stolta að mig svíður undan gæsahúðinni!
Va! Engin sma svadilfor. En spennandi ad vera a Fiji.
Innilega til hamingju með sigurinn í fótboltaspilinu! Sem fyrrum Austurbæjarskólameistari í spilinu veit ég að svona sigur er ekki gefinn, nei þarna liggur sko einbeiting, elja, snerpa og styrkur að baki. Bið svo líka að heilsa Helgu Báru - litla Ísland, litli heimur.
Ólöf í drullunni.. fannst ég kannast við baksvipinn þinn!
Svaka för, gaman að sjá að þetta er ekki allt vinna hjá þér.
Endilega láttu mig vita hvenær þú kemur svo að ég geti kíkt eftir húsnæði fyrir þig.
Skilaðu bestu kveðju til Helgu Báru!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim