íslendingar....
það er íslensk stelpa með mér í tíma í skólanum. þetta fékk ég að vita í fimmtu vikunni, ég var stórkostlega hissa því ég hélt að allir íslendingar væru með innbyggðan íslendingaradar, minn (og hennar) greinilega ekki að virka svona nálægt suðurpólnum.... svo var mér bent á hana og hún er svooo íslensk, hef reyndar ekki haft færi á að tala við hana enn, en reyni að ná henni í næstu viku. hvað á ég að segja samt? "ertu íslensk?" á íslensku er eitthvað svo þreytt... svo er víst önnur íslensk stelpa í deildinni, við erum semsagt fjórar, af ekki það mörgum verð ég að segja. klisjan er sönn, það eru íslendingar allstaðar.
kata og kristín eru að gifta sig í dag, ég er alveg í öngum mínum að vera ekki viðstödd, á stundum sem þessum spyr ég mig af hverju ég fór ekki í skóla á englandi eða einhversstaðar nær, en svo sé ég tunglið standa á haus, og kóalabirni og sólina skína alla daga og man af hverju ég fór hingað: óendanleg og óslökkvandi nýjungagirni, ekki einu sinni ævintýraþrá... alveg sama hvort það sökkar, bara að það sé nýtt.
þannig er það....
kata og kristín, til hamingju, þið eruð yndi, megi hamingjan og ástin gleypa ykkur með húð og hári :)
skál fyrir því,
óm

6 Ummæli:
hæ elskan mín,
takk fyrir allar kveðjurnar, brúðkaupið var frábært og það var augljóst hversu með okkur í anda þú varst!
Ertu ekki í molum annars eftir fráfall krókódílamannsins?
ég er eyðilögð, eins og allir hér. hef lent í tveimur löngum samtölum í dag við bláókunnuga um yndið sem þessi maður var... þvílíkur og annar eins missir, hann var ÆÐI!
úff
sakn sakn
tunglið á hvolfi...
ég er í finnlandi og get ekki lamið saman heillri setningu
Sæl og blessuð Ólöf mín, ég bíð æsispennt eftir næsta bloggi: Hvað mun gerast, hvert fer hún næst? Nær hún að tala við íslensku stelpuna? Framhald í næsta bloggi...
Bíð voða voða spennt, knús og kossar!!
Já hvernig er það? hvað er að gerast?
Alveg að verða mánuður...
Ertu semsagt búinn að finna fórnarlamb sem á brimbretti?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim