þriðjudagur, maí 02, 2006

strönd, outback, kengúrur...

ji, hvað er langt síðan ég bloggaði síðast... takk fyrir öll kommentin, þið eruð frábær!

semsagt, ég lofaði að koma ekki heim af ströndinni fyrr en með myndir af sætum sörf gaurum, og það voru fullt af þeim á ströndinni, mamma mía! en þar sem ég var sjálf að vesenast í þessu öldukófi þá var ég ekki í neinu ástandi til að hvorki ná almennilegri mynd né blikka nokkurn skapaðan hlut. ef þið sjáið fyrir ykkur hressilegar öldur, bikini og mig hristandi hárið þegar ég stíg upp úr öldunum þá skuluð þið alveg hætta slíkum hugsanagangi, myndin er meira ég í ölduþvottavél, hárið í augunum, saltvatn rennandi úr nefi og augum og frantískar þreifingar til að ganga úr skugga um að bíkiníið sé enn á réttum stað. ég sá ekki heila sjón allan daginn en reyndi þó að ná nokkrum myndum, með mjög misjöfnum árangri, só sorrí! þetta var eiginlega það næsta sem ég komst (sjá hér fyrir ofan), ég veit engir sjáanlegir magavöðvar en miðað við súrefnisskort og salteitrun þá var þetta það næsta sem ég komst! ég mun standa mig betur næst.

síðustu helgi skellti ég mér svo í outback ferð, kengúrur, köngulær og nautgripir, fullt af bjór og eðal ástralsk kántríball, tannlaust fólk í kúrekastígvélum og 6ára börn að leika sér á barnum meðan foreldrarnir sofnuðu ofan í bjórinn. ótrúlega gott að komast burt af háskólasvæðinu og anda að sér fersku lofti, fara í göngu og finna kyrrðina - búið að vera svolítið stress síðustu daga og á eftir að vera stressað þangað til í lok maí. rótarý félagarnir eru æði samt, rosa mikil samvinna, allir að hjálpast að, við lesum yfir ritgerðirnar og verkefnin hvort hjá öðru, þessu fólki fylgir svo gott karma að ég bara veit ekki hvert ég ætla, þau eru algjör yndi :)

ein kengúrumynd:

allavega, ætla að vera miklu duglegri að blogga, lofa lofa lofa!
knúserí,
ólsí

6 Ummæli:

Blogger Sassa sagði...

Guuud, gaeti thessi kengúra verid saetari hahah :-)

01:59  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ògedslega saet mynd, mig langar ì svona kengùrubarn strax (thù getur svaeft thad og smyglad ì hnadfarnagri til îslands)
Kriss

04:59  
Blogger Ólöf sagði...

no prob, á ég ekki að henda einum kóalaunga með, kengúrubarninu til samlætis?
:) lóa

10:47  
Blogger Hrólfur S. sagði...

ef thù thykist drukkna kemur kannski strandvördur og bjargar thèr!

11:21  
Blogger Ólöf sagði...

ég þurfti sko ekkert að þykjast, en mistökin voru að vera á strandvarðalausri strönd... náttla algjör byrjendamistök sem verða ekki endurtekin!

12:33  
Blogger Dýrið sagði...

Aetladi ad fara ad spyrja hvort thù vaerir bùin ad smakka kengùru thegar èg mundi ad...

gerir thù thèr grein fyrir ad thù ert fallegasta og hraustlegasta graenmetisaeta ì heiminum?

Àst,
frà theirri kùkabrùnu ì Argentìnu!

03:57  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim