Komin til Ástralíu
jæja, komin til ástralíu! er eitthvað hálfvandræðaleg með þetta blogg, veit ekki alveg hvernig þetta á að vera... allavega, bara að henda þessu af stað!
semsagt, hrikalega erfitt eitthvað að fara frá Íslandi, ég grét og grét þegar ég kvaddi fólk og það sem verra er að það fór enginn að gráta nema ég og jú mamma (takk mamma!). Held að þetta hljóti að vera aldurinn, ég er greinilega orðin heimakærari en ég var áður. Ég fann mig þó aftur á ferðalaginu, var næstum búin að gleyma þessari frábæru tilfinningu að vera ein á ókunnum stað, ný lykt, nýtt loft, nýir staðir og allt ókannað! frrábært!
var sótt út á flugvöll af ofurindælum rótarýhjónum sem keyrðu mig í súpermarkað, vínbúðina (við kallinn bonduðum strax í bjórsamræðum og hann heimtaði að ég keypti kassa af áströlskum bjór, hvernig gat ég neitað?) og heim. Ég lék á alls oddi enda illa haldin af svefngalsa og spenningi, það var svooo gaman!
ég bý í rosa fínni íbúð á háskólasvæðinu með Giri frá Singapore og Supna frá Indlandi (það er þó mjög óárennilegt fyrir þau að koma á eftir Gulla sem meðleigjendur, þau þurfa að draga eitthvað rosalegt trix uppúr hattinum til að eiga einu sinni séns). Skólinn er rosafínn, það er dekrað við okkur rótarý stúdentana, við erum með skrifstofu með nýjum tölvum, erum búin að fara í nokkur boð með kennurunum og allir eru út úr kortinu næs... hinir rótarý styrkþegarnir eru algjörar dúllur, hálf vandræðaleg með þetta alltsaman eins og ég sem er afar jákvætt...
fremst í flokki vina er japönsk stelpa sem er óðum að eyða út minningum af eina sambandi mínu við japanska stúlku, en sumir muna kannski eftir Toshiko sem bjó með mér í USA, tók ísskápinn úr sambandi án allra útskýringa, gat klætt sig algjörlega í og úr án þess að sæist í meira en úlnlið, talaði eiginlega enga ensku og misskildi gjörsamlega allt sem ég sagði og gaf mér kort í lok sambúðarinnar sem í stóð: Thank you for everything that you have done to me, I love you, Toshiko.
ok, það nennir enginn að lesa meira en þetta,
keypti annars myndavél í dag og set örugglega upp myndasíðu á næstu dögum,
látið endilega í ykkur heyra,
óm

9 Ummæli:
Elskan mín mikið er nú skemmtilegt að heyra svona aðeins allaveganna að þú ert að meika það í Ástralíu...ég bjóst svosem ekki við neinu öðru.
Ég sakna þín og elska þig í tætlur gamla.
Þetta hljómar allt saman vel! Vona að þú finnir góða jógatíma fljótlega. Hafði ekki pælt í því fyrr hvað upphafsstafirnir þínir eru töff fyrir jóga eins og þig.
Hæ, þú hinumegin á hnettinum ;)
Thank you for everything you have done to me, I love you!
Gunnhildur
Hallo astin min, jeg sakna thin ogurlega, og eg hefdi orugglega farid ad grata lika!! Skemmtu thjer roooosalega vel, knus, Bryndis
Elsku Loozy
Gott stuff, gott stuff. Rótarýhjón sem véla mann í ad kaupa bjórkassa á fyrsta degi lofa gódum tímum. Gangi thér massa vel ein í útlandinu elskan mín.
Hae saeta!
Geturdu sent mér netfangid thá Thosiba mig langar óstjórnlega ad kynnast henni. Ég heyri strax ad hún er mín týpa og gaeti kannski ordid au pair hjá mér og kristínu í framtídinni.
Annars er yndislegt ad heyra frá thér fréttir elsku lóa. Hafdu thad frábaert og vertu dugleg ad drekka og blogga Mate!
jei, rosalega er ég ánægð með þessi komment, þið eruð öll langbest!!!
ást og knús,
óls
Hallo elskan! Ég er búinn að vera busy undanfarið, verð að skrifa þér smáatriðin í tölvupósti.
Og nei! Þú varst ekki sú eina sem fórst að gráta, en ég var að keyra í burtu frá þér og þurfti að stoppa handan næsta horns til þess að krókódílatárin keyrðu mig ekki út í vegg.
Það fer sýnilega vel saman hjá þér að njóta þess vera í þessu stórfína umhverfi & félagasskap og sökkva sér niður í spekinga eins og Kant. En þú ert einbeitt, Lóa mín, og lætur ekkert rugla príoritetin. En þín er saknað úr UNICEF og hér verður 9 stiga frost á morgun.
Góðar kveðjur - Einar
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim