andvaka...
er andvaka enn og aftur, búin að liggja í rúminu í hálftíma, en enda bara á að hugsa og hugsa og ræð ekkert við endalausar hugsanaárásir, er því búin að gefast upp í bili... ég held að þetta svefnleysi sé vegna þess að ég er bara í kvöldkúrsum sem eru búnir kl. átta eða níu á kvöldin og heilinn er enn í hugsanastússi lengst fram eftir kvöldi. Í kvöld var ég td í umræðutíma hjá frábærum frönskum kalli sem talaði fjálglega um írak og kúveit og íran og bandaríkin, svo tússar hann örvar og hringi á töfluna á ljóshraða og ég bíð bara eftir að hann hoppi upp á borð til þess að undirstrika mál sitt enn frekar, hann er æði. En svæfandi er hann ekki...
kom svo heim í kvöld og átti mitt fyrsta stefnumót við ástralskt risaskordýr, ekki spyrja mig hvað það var, en það var á stærð við fuglsunga, það flaug og suðaði og lét öllum illum látum. Ég náði að halda stillingu minni (hlutfallslega), stökk inn í herbergi og er þar enn. Held ég bindi lökin saman og búi til sigútbúnað af svölunum til þess að komast út á morgun...
annars er góð stemming, mamma sendi mér kassa með fullt af frábæru dóti, kúlusúkk, bækur, séð og heyrt, föt sem komust ekki með og fleira - takk mamma! er svo byrjuð í sjálfboðavinnu við að hjálpa unglingum sem komu hingað sem flóttamenn (er orðið flóttaunglingur til?) við heimanámið - já, ekki nema von þið spyrjið, veit ég eitthvað um heimanám unglinga í ástralíu, svarið er nei, allavega stóð ég á gati í efnafræðinni, mólmassi eitthvað... endaði á að hjálpa þessum ofurdúllulega strák frá súdan með kynningu sem hann átti að halda í enskutíma, held ég hafi reyndar ruglað hann enn frekar í ríminu en hann virtist þó ansi hress með þetta alltsaman. Þetta eru allt krakkar sem hafa gengið í gegnum ótrúlegar raunir, vist í varðhaldi, ofbeldi, ástvinamissi og ég veit ekki hvað. alveg magnaðir krakkar...
allavega, held ég kaupi mér símakort til þess að geta hringt til íslands á þessum andvökunóttum, verið því viðbúin!
góða nótt!

6 Ummæli:
ég bjó hjá kínverja í ástralíu sem var íkt klár í ad drepa kakkallakka med thví ad stappa á theim med vidbragdssnerpu sem á sér enga hlidstaedu. hann var alltaf í Kínaskóm.
Mitt rád til thín í skordýralandinu: Fádu thér kínaskó!
takk takk, strætó í kínahverfið núna!
Skype, prófaðu það allaveganna.
Þú ert svo yndisleg, átti ekki að koma mér á óvart að þú færiri að hjálpa flóttaunglingum.
Vona að allt gangi vel hjá þér hinu megin á hnettinum í landi Olaviu Newton- John og Kylie
OMG! Passadu thig a pøddunum elsku ormur! um daginn flaug agnarsma fluga i augad a mer, og thad var frekar vont. eg get rett imyndad mer hvernig er ad fa svona astralskan pødduhlunk i augad eda upp i nøsina. a eg ad prjona handa ther einhversskonar nefhlif til ad varna pøddum inngøngu?
Halló draumslan mín,ég vona að þú ráðir við dýrin, ég er fegin að fellibylurinn skolaði ekki upp til þín krókodílum og öðrum óargadýrum. bestu kveðjur Mútta.
ef madur stappar a olettum kvenkakkalakka, festast hardgerd eggin undir solanum og svo dreyfir madur ur theim
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim