laugardagur, mars 11, 2006


þetta er yndisleg borg! ég er búin að eiga alveg frábærlega hamingjusaman dag ráfandi um borgina í sólskininu.
vikan var góð en þreytandi, endalaus greinalestur, umræðutímar þar sem ég lenti í því að verja rétt friðargæsluliða til að beita valdi og vopnum til að koma á friði, af miklum sannfæringarkrafti (ég varð mjög æst þó ég sé alls ekki viss um að skriðdrekar séu farartæki til friðar, gandhi hefði snúið sér við í gröfinni hefði hann heyrt til mín) og seminörum þar sem við rótarý plebbarnir (sjá seventís mynd hér fyrir neðan) sátum opinmynnt í skilningarleysi, skildum varla spurningarnar hvað þá svörin. Hér talar fólk í deildinni í ismum og uppskrúfuðu menntamáli, vona eiginlega að ég eigi ekki eftir að aðlagast of mikið... en það er gott að vita að hinir rótarýlingarnir eru alveg jafn týnd og ég :)

allavega, eftir partýstand gærkvöldsins ákvað ég að taka daginn rólega og lesa EKKERT! jess! fór niður í bæ og spókaði mig í allan dag og verslaði alveg svakalega mikið. ástralía er ÆÐI! þið verðið að koma að heimsækja mig, verðið verðið verðið! hér spyr fólk mann í búðunum hvernig dagurinn hafi verið og hvað maður ætli nú að gera um helgina og eru svo frábærlega einlæg, maður lendir í stöðugum kjaftagangi við fólk í búðum og á strætóstoppistöðum, allir brosandi og afslappaðir.
borgin er algjört yndi, það rennur á þvert í gegn og á henni ferðast maður um á lítilli ferju, (það eru hákarlar í ánni, bara svona til að halda hákarlaþemanu lifandi..), allt skógi vaxið og fallegt.
ódýr bjór, fullt af asískum veitingastöðum, útikaffihús, flottar búðir, endalausir tónleikar, ég veit ykkur langar!!!

allavega, hef alls ekki verið dugleg að taka myndir þannig að ég setti þarna eina svakalega túristalega... ætla þó að henda einni annarri mynd af rótarý liðinu á næstunni, úkraínski strákurinn er að gera lukku hjá hommunum þannig að ég verð aðeins að setja fram betri mynd :)

8 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

híhí, oh en spennandi......hlakka til að sjá fleiri myndir.
Eru strákarnir sætir? Er fólkið smart í tauinu? Þú kemst strax inn í þetta ism og allt það, tekur smá tíma en kemur fljótt. Stundum þarf að beita hörku til að koma á friði...knús sæta

04:35  
Blogger Héðinn sagði...

Velkominn i minn heim. Eg tala i ismum eftir ad eg byrjadi i minu nami, teir sem eru mer efst i huga nuna i ritgerdarvinnunni eru, relativismi, culturalismi, nihilismi, essentialismi og universalismi. GAMAN! Kiss H

04:49  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ég skal sko koma til þín gamla mín ég er byrjuð að safna fyrir flugmiðum og sjoppingspríjum

20:45  
Anonymous Nafnlaus sagði...

okei þessi að ofan ér ég
Kv Svana

20:46  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Halló Halló Ólöf

Mér finnst feitt að þú sért að massa lífið í Ástralíu svona vel. Ég er með nokkrar spurningar til þín varðandi skóla, væriru til í að gefa mér e-mailið þitt. E-mailið mitt er: orj2@hi.is

Kveðja Orri frændi

12:11  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Orrrmur!
ég er þegar farin að safna til að koma og heimsækja þig og eitraða frændorma okkar. Þetta er bara alveg borðliggjandi.

17:49  
Blogger Gulli sagði...

Þegar ég las þessa lýsingu á lífinu í Ástralíu, hugsaði ég strax: "ok, get ekki tekið uppáhalds ferðafélagann minn, Héðinn, með mér - því hann þolir ekki innantómt spjall og kurteisihjal við ókunnuga"

Söknuður úr Villingaholti, fyrrverandi Sambýlið að Hringbraut

20:05  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hae lùsìfer minn!
Gaman ad thù skulir hafa thad svona gott. Èg vil sjà brimbrettamyndir! Thù hefur 20 daga1

03:54  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim