ég er búin að vera svolítið upptekin af öllum eitruðu kvikindunum og hákörlunum og marglyttunum og krókódílunum í Ástralíu, svona meira í djóki en alvöru reyndar en samt... Svo sat ég makindalega í flugvélinni á leiðinni hingað og las Down Under eftir Bill Bryson sem ég var búin að geyma að lesa síðan ég vissi að ég var á leiðinni hingað því ég hafði heyrt að hann væri alveg jafn upptekinn af þessum sömu kvikindum og ég. Þetta hafði Bill að segja mér meðan ég var læst inn í flugvél á leiðinni út:
"It [ástralía] has more things that will kill you than anywhere else. Of the world's ten most poisonous snakes, all are Australian. Five of its creatures - the funnel-web spider, box jellyfish, blue-ringed octopus, paralysis tick and stonefish - are the most lethal of their type in the world. This is a country where even the fluffiest of caterpillars can lay you out with a toxic nip, where seashells will not just sting you but actually sometimes go for you. Pick up an innocuous coneshell from a Queensland beach [ég er einmitt þar], as innocent tourists are all too wont to do, and you will discover that the little fellow inside is not just astoundingly swift and testy, but exceedingly venomous. If you are not stung or pronged to death in some unexpected manner, you may be fatally chomped by sharks or crocodiles, or carried helplessly out to sea by irresistible currents, or left to stagger to an unhappy death in the baking outback. It's a tough place."
Jahá!
Ef maður spyr Ástrali eitthvað út í þessar hættur sem leynast í hverju horni þá eru svörin oftast á þessa leið, "tja, hákarlaárásir eru nú ekki það tíðar, hvenær var síðasta banaslysið hér í Queensland?" og maður býst við að næsti maður svari "1997" eða eitthvað slíkt, nei nei, þá var það fyrir tveimur vikum. Svo eru endalausir þættir í sjónvarpinu um hvernig á að komast hjá því að verða fyrir hákarlaárásum, eitt er að missa ekki stjórn á sér (mjööög líklegt), veifa strandverðinum og annað í þeim dúr. Svo hafa þeir geð í sér til þess að sýna Jaws í sjónvarpinu, ég er algjörlega heilluð af þessum hugsanagangi, og ég horfði á Jaws í masókistahrolli í síðustu viku.
meiraðsegja ein bílaauglýsingin hér er þannig að maður er bitinn af eitruðum snák og stekkur upp í bílinn þjáður af brjáluðum ofskynjunum og svitakófi og hálfgerðu meðvitundarleysi en bíllinn kemur honum örugglega í læknishendur og lætur ekki eldspúandi dreka og ormafjall stöðva sig. Engin panoramísk skot af bílum í flæðarmálinu og upp á jökli að ná í ísmola í vatnsglasið hér...
jæja, rosalega eru þetta eitthvað langar færslur hjá mér, ekki gefast upp samt!!!
óm

6 Ummæli:
ekki gleyma kengúrunum! Thaer geta litid út fyrir ad vera yndaelir bambar med hamborgararass... en NEI! Thegar thú síst átt von geta thaer stokkid aftan á thig og reynt ad kirkja thig med píanóstreng... láttu mig thekkja thad!
ji minn, það er ekki á það bætandi!
takk fyrir ábendinguna :)
Jedúddamía!! Ef thad er eitthvad sem ég tholi ekki thá eru thad thessi ógedslegu eitrudu kvikindi...og ég tel mig dýravin hin mesta! Í gudanna bænum fardu varlega!
Hér í Køben er kuldinn thad eina sem getur drepid mann thessa dagana. Kannski er Ástralía ekki svo slæm :)
Knús yfir á hinn hnattarhelminginn.
Vorum við ekki búin að tala um að þetta blogg yrði ritskoðað með tilliti til þess að foreldrar og ættingjar munu lesa bloggið?
Ég skil þig samt vel, ég hef aldrei sjálfur tekið mið af því. Vonandi eru foreldraeiningarnar rólegar þó að þeir lesi svona.
Sakn
ji, ég hafði ekki einu sinni hugsað út í það, takk gulli og sorrí mamma og pabbi og allir vel meinandi ættingjar :)
Gaman að lesa þig gamla, velkomin... Kiss H
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim