
jæja, er að lesa Kant, nú eða öllu heldur ekki að lesa Kant akkúrat á þessari stundu. Meðan ég hef "lesið" grein Kants um perpetual peace hef ég sett í vél, hitað kaffi, tekið til og spjallað við Sapna um þvottefni.
annars hefur það komið mér á óvart að eiga eiginlega aldrei lausa stund hér í þessu námi, það er tryllingslega mikið á döfinni, alltaf. Sem er nú bara mjög gott, ef það eru ekki umræðutímar eða seminör, thá eru vinnusmiðjur og fundir, og hádegismatur með Rótarý-fólki, húsfundir eða óformlegir hittingar þar sem rætt er um isma og fleiri isma. Þetta gerir það að verkum að ég þekki engan fyrir utan deildina (fyrir utan meðleigjendurna) og er því eins og snigill í skelinni. Hvað er að gerast í heiminum fyrir utan það að SÞ er að taka við friðargæslu í Súdan? Hver er að deita hvern í Hollywood? Var besta plata í heimi gefin út í vikunni? Kant segir ekkert um það...
en hér fyrir ofan er annars mynd af meðleigjendunum, þeim Sapna og Giri, ásamt Fupi frá Japan sem er litla húsdýrið okkar. Sapna og Giri eru hér að kenna okkur að gera almennilegt karrí, en það tók tvo og hálfan tíma, eitthvað sem nútímakona eins og ég er ekki alveg að taka sem gott og gilt...
en takk allir fyrir að kommenta og senda pósta, mér finnst þetta fyrirkomulag alveg brilliant, ég er alltaf að kíkja og athuga hvort einhver ný komment séu komin! oh ég er svo heppin að eiga allt þetta góða fólk að :)
njótið tilverunnar,
knús
óm

6 Ummæli:
úff, já þetta er ein af þessum ömurlegu staðreyndum þessa lífs: að elda góðann mat tekur laaangan tíma. En ef tíminn er eitthvað knappur þá finnst mér ristað brauð með osti líka geta verið herramannsmatur. Namm!
Hæ elskan mín,
Langaði bara að segja að ég kíki líka alltaf spennt á síðuna þína hvað er að gerast.
Ertu byrjuð í rugbyinu og búin að kaupa þér miða á INXS eins og um var talað
Hæ sæta,
Það er æðislegt að lesa færslurnar þínar en ég vil benda á að krukkusósur geta verið herramannsmatur :Þ. Allavega tekst mér betur til með hjálp þeirra en með margra klukkustunda púli í eldhúsinu.
Hlakka til að lesa meira
Margrét Björk
Sæl skvís.
Það er er aldeilis margt um að vera hjá þér. Ég er viss um að Kant eigi eftir að koma að góðum notum síðar með;)Fátt eitt skemmtilegra en að lesa verk heldri og fróðra manna. Nú er laugardagskvöld og ég sit yfir bókunum, kysi nú að gera eitthvað skemmtilegra. Karrýrétturinn hlýtur að hafa smakkast með eindæmum vel, þrír tímar!!
love
Ólsí
Thad eina sem thú tharft ad vita um heimsmálin Lóa mín er ad Nylon er ad fara ad hita upp fyrir Westlife!
Madur kaldsvitnar af spenningi!
xxxx
KO
brad pitt og angelina jolie eru byrjud saman
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim