"bara þessa einu kippu?"
var ég búin að segja ykkur hversu mikið ég fíla ástralíu? mig minnir það...semsagt, ég var úti í búð í dag, súpermarkaðurinn er svolítinn spöl í burtu og því þarf að velja vel og vega og meta hvort hver einn og einasti hlutur sé þess virði að drösslast með heim í hitanum. gerir það að verkum að ferðirnar í súpermarkaðinn taka svoldinn tíma...
ýmislegt er þó þess virði án umhugsunar, súkkulaði, jarðarber og þvottefni, og svo auðvitað bjór. og hér kemur ein ástæðan fyrir því að ég elska ástralíu. Ég fer inn í vínbúðina gjörsamlega klyfjuð af súkkulaði, jarðarberjum og þvottefni og ætla að kaupa bjór. þegar ég kem að búðarborðinu segir afgreiðslustrákurinn frekar hissa og undrandi: "bara þessa einu kippu?" þetta fíla ég, en þar sem ég átti bara tvo putta lausa í pokafylltum höndunum varð ég að svara að eina ástæðan væri að ég gæti ekki haldið á meiru. ég held að hann hefði ekki tekið neinni annarri afsökun sem gildri og leyfði mér því að kaupa kippuna, en ég fór skælbrosandi út, þetta er stemmingsfólk þessir ástralir!
skál fyrir því,
ólöf

7 Ummæli:
Verð að drífa mig hinum meginn á hnöttinn, mí lækí ;)
900 kr komnar í ferða sjóðinn minn, allt að gerast
og £130 komin i minn ferdasjod! oh hvad mig langar ad koma i heimsokn! vid skellum okkur svana!
tips: uppahaldsbjor mish er coopers pale ale (eda paleys eins og hun kallar hann). hun loksins fann stad i manchester sem selur paleys og keypti i massavis thegar vid heldum uppa "australian day".....og eg verd ad segja ad hann er aaalveg godur!
endinlega emailadu mish, hun er vist med fullt af brisbane-tips (og hljomsveitarstraka :)) fyrir thig.
xxx
Jessör, ég vissi að það væri ekki bara Nágrannar sem ég fílaði við Ástralíu! :p Úps, sagði ég þetta? Neineinei, enginn Nágrannaaðdáandi, sko, hehehe...
hæ elskan min! Alltaf gaman ad lesa um þín ævintýri. Oh, já, hljómar vel þetta með kippuna. Og kostar örugglega ekki neitt...
Af mér er allt gott ad fretta. The big thirty coming soon...hlakka nu bara til. Sakna thin og segi bara, skal i bodinu:)
knus
p.s. vá, dýr á stærð við fuglsunga, mygood
Olof elskan! Vantar postfangid titt... Knus H
Ég doubla Svönu og legg 1800 krónur til hliðar...
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim