þriðjudagur, apríl 18, 2006

frí frí frí

en hvað er yndislegt að vera í fríi... ég á reyndar að vera að skrifa ritgerð og skýrslu en who cares?! það er líka alveg sérstaklega skemmtilegt að vera í fríi hér, ástralir kunna alveg ótrúlega vel að vera í fríi. fólk grillar í almenningsgörðum, er í frisbí, fer á kajak á ánni, hjólar meðfram árbakkanum og tsjillar...
en ég átti annars frekar íslenska helgi. sigurrós og amina voru með tónleika í brisbane um helgina og sólrún var svo yndisleg að bjóða mér. ég tók ástu með og við glottum af stolti alla tónleikana, þau voru frábær! hittum svo sólrúnu í einn bjór eftir tónleikana en þau voru á leiðinni til nýja-sjálands strax næsta morgun, þannig að við ásta enduðum tvær á bar í kínahverfinu... svo fór ég í páskamat til ástu og skúla á páskasunnudag, kartöflur, rauðkál, baunir og spilað rommí með vilhjálm vilhjálmsson í spilaranum, gæti ekki verið betra.
rótarý hjónin mín tóku sig svo til og fóru með mig í dagsferð á ströndina í gær, borðuðum fish and chips við höfnina og mig langaði til þess að kasta mér í sjóinn af sjávarsöknuði, ég var himinlifandi af því að finna lykt af salti og slori, furðulegustu hlutir sem maður getur allt í einu saknað... skil ekkert í þessu. allavega, kíktum á mangrove tré í flæðarmálinu, sjá mynd, og þau voru að missa sig í að sýna mér alla fugla í kílómetra radíus og ég sem hef akkúrat engan áhuga á fuglum lagði mig alla fram við að þykjast sjá pínulitla svartnefjaða cookaroo fugla með hvítt undir vængnum eða hvað sem það var í laufþykkni, en tréin voru falleg :)

hef fengið athugasemdir um að sýna meira af sætum surf gaurum með þvottabrettismaga, það er allt í farvegi, er að fara í klettaklifur á morgun og á ströndina með vinkonunum á sunnudaginn og ég kem ekki heim án þess að hafa séð þessa vel földu áströlsku sörfara og tekið af þeim mynd og blikkað þá aðeins... það er loforð.

hafið það gott og farið vel með ykkur,
knúserí,
óm

11 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

ÖFFFFFFFUND, mig langar líka á strönd, nauthólsvíkin er bara ekki að gera þetta fyrir mig, en í páskafríinu voru hjólin dregin fram úr bílskúrnum og aldrei að vita nema að hjólatúrar von kúrland fjölskyldunnar taki á sig mynd á næstu dögum.

19:00  
Blogger Tinnsi sagði...

Ohhhh, mig langar líka í klettaklifur í Ástralíu. Ef þú hittir í klifrinu írskan strák sem heitir David, þá bið ég að heilsa honum. Hann var besti klifurkappinn í klifurklíkunni minni, þangað til hann flutti til Ástralíu.

05:24  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Þið Ása talið um Rótarýhössl, hvað með syni Rótarýfólksins, ertu farin að tékka á þeim eins og sumir á síðustu öld?

07:42  
Blogger Ólöf sagði...

fanney, ég get sagt þér það að sonur rótarýhjónanna er pro sörfari sem býr á Balí og ef hann byggi ekki þar þá væri ekki ólíklegt að ég tæki suma á síðustu öld mér til fyrirmyndar!
:)

11:45  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Soninn heim!

20:12  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Guuuud soninn heim hahaha, sagt af heilu mj0g reynslurìku hjarta, en spillir thò ekki fyrir ad hann hafi tvaer hendur...
love

12:17  
Blogger Bryndis sagði...

Þetta hljómar afskaplega vel hjá þér! Mun skárra en rokið og rigningin hér... og, bíddu, vissirðu þetta ekki með mig og Bubba??? Knúús og kossar, honnípæ!

21:48  
Blogger Gulli sagði...

stemningsmenn þessir Ástralir, ertu búin að finna besta bjórinn handa mér og sætustu hommana/strákana?

22:28  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Halim heim!

Hvad segirdu annars knúsifer minn, á ekki ad fara setja staf á skjá?
hapthu thad sem allra best ljúfan og passadu thig á bolvudu bladburdarfólkinu, thad er ekkert af thví sem thad er séd.

02:03  
Blogger Sassa sagði...

Koma svo med bloggfréttir elksu Lóa...nema thú sért svona busy vid ad táldraga surfarana, thá ertu loglega afsokud ;)

07:48  
Blogger Hölt og hálfblind sagði...

Myndir af sörfstrákum, takk fyrir. Því fyrr því betra og því fleiri því betra. Tek samt gæði fram fyrir magn.

09:28  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim