fimmtudagur, apríl 13, 2006

páskafrí

var að skila tveimur ritgerðum rétt áðan og get því loksins um frjálst höfuð strokið... páskafrí framundan, var að fá pakka frá mömmu með páskaeggjum og séð og heyrt (bubbi komin með nýja leynikærustu á "þrítugsaldri" - óljósasta fyrirsögn í heeeimi) og get því legið í rúminu og borðað súkkulaði, gæti ekki verið betra.
er eitthvað hálfandlaus eftir þessi ritgerðarskrif, ætti kannski að bíða með að blogga fyrr en ég er komin heim í kvöld eftir að hafa skálað fyrir skilunum - ætla að skella mér út með japanskri vinkonu sem kom mér mjög á óvart með að hringja áðan og skvera mér út í bjór, þær eru algjört æði þessar japönsku stelpur, svo prúðar!

allavega, ætla að hætta þessum andlausu skrifum hér og nú (fékk það blað reyndar líka sent frá mömmu) og koma aftur tvíefld í næstu skrifum,

knús,
óm

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Gledilega páska Ástralíuyndi.
Bjórinn er nú ljúfur eftir skólaskil. En hvernig er thetta er ekkert ad raetast úr thessum Rótarýnemum svona h0sllega séd...
Bíd spennt frétta. love ace

10:08  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim