fimmtudagur, mars 30, 2006

Lóan er farin


þessa frétt um daginn á mbl.is og kættist mjög... gott að vita að lóan er velkomin í norðrinu því hér er hún alræmdur skaðræðisfugl sem fólk þreytist ekki á að dissa í gríð og erg. að heita lóa hér er væntanlega eins og að heita mörður á íslandi (sorrí allir merðir sem gætu slæðst til að lesa þetta), en reyndar samt örugglega verra miðað við reiðilegt frussið og rjóðar kinnar sem fylgja áströlsku tali um lóur. kannski eru ástralskar lóur einhver hulk útgáfa af íslenskum lóum en þær eiga td að vera með gadda á vængjunum, afar hefnigjarnt eðli og ráðast á fólk (sérstaklega lítil börn) án allrar ástæðu - ég hætti því alveg að segja fólki hvað lóa þýðir eftir fyrstu vikuna, ekki meira fruss fyrir mig...

verið því góð við lóurnar sem koma til íslands, hver veit hvaða rógburði þær hafa orðið fyrir í vetursetunni.

annars er árshátíð miðstöðvar sþ um helgina, svona heldur lífið vægðarlaust áfram (án mín)... ef þið sjáið fólk í teinóttum jakkafötum og steingráum drögtum í ratleik um kjörbúðir þá bið ég að heilsa þeim :)

knús til ykkar allra,
gaddvængjan

10 Ummæli:

Blogger Bryndis sagði...

Ég vil fá Lóuna frá Ástralíu og hingað heim... sniff! Fyndið samt, Lóan sem allir elska á Íslandi!

00:06  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ fjarlægasta frænka mín!

Frábærlega gaman að lesa alla pistlana þína. Sérstaklega áhugavert að lesa um almenningsálit lóunnar þarna niðrundir. Vona bara að þú sért ekki í neinni hættu! Allt gott að frétta af mér - kem alveg hiklaust í heimsókn er ég fæ þann stóra í Happdrætti Háskólans (á reyndar 2 miða..svo það gæti gerst). Besta kveðja frá Gerta frænda.

06:07  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ Lóan mín!

Það verður bara svo miklu minna skemmtilegt án þín en það verður sko rætt um þig, skálað fyrir þér og já, kannski bara slegið á þráðinn...
alla vega,
sakna þín sæta
p.s. heyrðu, ég vil sjá meiri svona myndir frá sjálfri borginni, ekki myndir af rótary gengi og rótary gengi að laga mat....útiúti....brúna surfers og svona

21:00  
Blogger Sassa sagði...

Blessud mín kaera
Ég var víst ekkert búin ad sjá thig eftir ad thú fékkst thér strípurnar, hvor theirra á myndinni ert thú...ehhh ;)

12:36  
Blogger Ólöf sagði...

hvað meinarðu, þekkirðu ekki vangasvipinn?
:)

18:15  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Er ekki tilvalið að fara að kalla sig Ólöf aftur? Ef ekki betra að vera líkt við sænskan pólitíkus en skaðræðis fugl?

23:33  
Blogger Ólöf sagði...

fannsa, það er nokkuð til í þessu!
Olaf

00:44  
Anonymous Nafnlaus sagði...

"Hulk -útgáfa af íslenskum lóum" ég dó næstum úr hlátri

19:53  
Blogger Gulli sagði...

Ég er búinn að skrópa á þessu blöggi í mánuð, uss uss...

23:52  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Lóan er svo sannarlega farin og lestur þessara bloggfærslna er staðfesting á þeirri sorglegu staðreynd fyrir Miðstöð SÞ. It's just not the same without you... Ég lofa því að draga Önnu og Evu í drykkju að áströlskum sið í afmælinu í kvöld - skál í boðinu!

21:04  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim