sól
sólin skín hér á hverjum degi og ég er bara ekki að venjast þessu, ég tala um veðrið á hverjum degi og fólk er ekkert að skilja í mér, ég er bara svo vön því að minnast á það þegar veðrið er gott, "nei, en frábært veður", "ahh, sólskin" og svo frv. nú er vetur í brisbane og allir dagar eru eins og fullkominn íslenskur sumardagur, ég er hin kátasta alla daga, alltaf úti að hjóla og brjálað hress meðan fólk hér talar um vetur og hvort vorið sé ekki fara að koma. ég ætla að leiða það allt hjá mér og njóta hvers dags áður en þessi staður breytist í 40gráðu sumarvíti!
skólinn er að komast í gang, ég las grein í síðustu viku, sem þykir nokkuð gott þar sem ég hef varla lagt kúrsheitin á minnið hvað þá athugað um hvað þeir eru. þetta 7 vikna frí um daginn bara algjörlega slökkti á allri heilastarfsemi, allar frumur líkamans eru staðráðnar í því að fríið sé ekki búið og ég ræð engu...
helgin var svo alveg svakalega sósíal, fór í matarboð til ástralskrar stelpu sem er með mér í tíma. hún á alveg yndislega fallegt heimili, eitt fallegasta og notalegasta heimili sem ég hef komið í, mig langaði hreint ekkert til að fara heim aftur. allir sem ég þekki hér, fyrir utan sjötuga rótarýklúbbara, eru alþjóðlegir stúdentar og heimili þeirra eru samansafn af húsgögnum sem voru fundin út á götu, plaststólar og kort af ástralíu á veggnum. en allavega, frábært matarboð, ég var "útlendingurinn", svaraði þessum týpísku íslandsspurningum (er að hugsa um að taka upp smá tölu á segulband og bara ýta á play við fyrstu viðkynningu og þá er þetta bara búið) og hinar stelpurnar voru æði, týpískar ástralskar píur sem létu allt flakka, ótrúlega hressar, það er rokk í áströlum verð ég að segja. fór svo í grillveislu á laugardaginn þar sem ég talaði einmitt mikið um veðrið, því það var ÆÐI! skellti mér svo líka í pönnukökumorgunmat til styrktar útrýmingu mænusóttar, uppáhaldsfjáröflunarleiðir rótarý eru pönnukökur eða grillaðar pulsur, og þá vil ég nú frekar vera í pönnukökuliðinu.
kláraði svo flugdrekahlauparann um daginn, svo margir sem ég þekki hafa lesið bókina, og grátið, þannig að ég las hana líka, og grét. þessi rithöfundur nær að spila á tárakirtlana eins og fiðlu, þegar maður heldur að nú geti ekki meira gerst þá bara á næstu síðu er maður aftur farin að grípa í tissjúið, mæli með henni.
ok, hér eru myndir frá puttaferðalaginu, þær eru flestar af lisu og dao sem voru hinir fullkomnu ferðafélagar, stórkostlega fallegt fólk.
fariði vel með ykkur,
knús :)

fariði vel með ykkur,knús :)

1 Ummæli:
Hæ skruddan mín og takk fyrir fínar myndir.Þú ættir nú að baka nokkrar pönnukökur fyrir rotary og pabbi þinn gæti gefið þér uppskriftina.Bestu kveðjur Mútta
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim