laugardagur, júní 03, 2006

guði sé lof fyrir færeyinga

jæja, fresturinn fyrir síðustu og lengstu ritgerðina var framlengdur fram á mánudag - sem er mjög gott þar sem ég var engan veginn tilbúin til að skila, en pínu pirrandi samt að vera ekki búin að skila...! var á netinu áðan að reyna í örvæntingu að finna eitthvað annað að gera heldur en að spökulera meir í fjöldadrápum og rambaði þá inn á olivant.fo sem við yfirmaður minn á skeljungi orguðum af hlátri yfir þegar við nenntum ekki að pæla í hvað útgerðarmennirnir skulduðu mikið - aulahúmor starfsmanna skeljungs kom mér í gegnum það að vinna fyrir þennan kapítalíska risa og kom mér í gegnum þjóðarmorðin í dag, sjá til dæmis þessa frétt:

03. jun 2006, 12:05
Leita eftir bumbu í London

Bretska løgreglan leitar eftir einari evnafrøðiligari bumbu í London.

Løgreglan handrók í gjár ein mann undir einari rannsókn har eysturi í London. Ein annar maður varðå særdur av skotum frá løgregluni undir rannsóknini, sigur BBC.

Løgreglan fann onga bumbu, men keldur siga við BBC, at løgreglan er sannførd um, at ein evnafrøðilig bumba er í London, og tí heldur leitingin fram.

Umleið 250 løgreglumenn eru við í átakinum.

© Árni Joensen - Sosialurin
Veitst tú eina søgu? Boða okkum frá á tlf.


æ takk færeyjar,


2 Ummæli:

Blogger Gulli sagði...

Við erum eins og einn hugur! Ég var einmitt inn á dimma.fo um daginn og skemmti mér konunglega. Ég sakna þín, fór út á bílastæði um daginn og horfði á blokkina okkar, fannst ég þurfa að gráta en tók mynd í staðinn.

02:51  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ elsku lóa mín,
Mig dreymdi þig um daginn og það var fallegur draumur mjög. Svona draumur eins og í bílaauglýsingum þar sem þú varst eitthvað að dansa um í hvítu... ertu nokkuð búin að laumuskrá þig í Íslenska dansflokkinn? Það gæti skýrt þetta mál. Annars fullyrði ég að bjartir tímar séu framundar, enda er ég og hef alltaf verið VANDRÆÐALEGA SKYGGN!
ástarstraumar og stafræn knús frá hrúðnum litla í N-Atlantsh.

19:10  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim