laugardagur, maí 13, 2006

í dag fór ég í fyrsta skipti á ævinni sjálfviljug út að skokka! einhver ókunnug kennd greip mig í dag meðan ég grúfði mig yfir bókunum og las um þjóðarmorð þannig að ég skveraði mér í íþróttaskóna sem ég keypti fyrir nokkru (fékk vitrun um að þessi dagur myndi koma) og hljóp af stað. mér var mikið hugsað til hennar gunnhildar sem sjálf fór út að skokka á dögunum og minntist í því sambandi á rocky í gráu hettupeysunni, hlaupandi um new york aleinn í frostinu, boxandi upp í vindinn. mér leið líka svolítið eins og rocky, fannst ég til dæmis alveg getað rotað mr. t eða appollo hefði ég mætt þeim, en umhverfið var ólíkt, 25 stiga hiti, krökkt af áströlskum íþróttafríkum á hlaupastígnum og fólk í tennis og fótbolta hvert sem auga var litið.
ég fíla þennan hressileika hér í brisbane og vona að mér endist dugurinn til þess að fara allavega einu sinni enn aftur út að skokka áður en árin tvö eru liðin, þekkjandi mig er eiginlega ekki hægt að ætlast til meira en þess...

veriði nú stillt og prúð,
óm

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Adrían, adrían!!!!
Thad var rètt, naesta skref ad fjàrfesta ì ministuttbuxum og leikfimisbol :)

02:03  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mikid ertu dugleg, aetli thu komir heim, alveg breytt Loa, rosalega brun og sporty, og hangir bara i Laugadalnum ad skokka, hmm
Alla vega, oh hvad eg vildi eiga eina kvoldstund eda svo med ther og kjafta um allt og ekkert.
Knus og kossar, Eva

22:26  
Blogger Hölt og hálfblind sagði...

Rocky rules!

02:14  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Halló skruddið mitt,gott hjá þér að vera farin að skokka ég gæti vel hugsað mér að hlaupa með þér. Mútta.

21:41  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim