ritgerðir.....
er á kafi í ritgerðum um þjóðarmorð, átök, flóttamenn og innrásir af mannúðarástæðum (hvernig sem maður þýðir eiginlega humanitarian intervention) og sit nú sem frosin fyrir framan tölvuna, heilinn farinn í hádegismat og útréttingar, sagði ekkert um hvenær hann yrði aftur við.
á að skila tveimur ritgerðum á fimmtudag og einni á föstudag og svo 7 vikna frí. ég fíla þetta námsmannalíf og fríið sem fylgir því, sérstaklega þegar maður er í návígi við strendur, kóralrif, regnskóga og suðurhafseyjar, svolítið erfitt að einbeita sér að þessum verkefnum þegar þessi þykka ástralska lonely planet bók stendur þarna í hillunni og blikkar mig...
en bara þrír dagar og svo búið, ég er búin að vera svo upptekin af þessum ritgerðum að þegar mamma hringdi um daginn til að segja mér fréttir af ömmu rúnu og mjöðminni þá spurði ég hvort hún væri búin að fara í ritgerð, fannst það alveg fullkomlega eðlilegt, þangað til mamma sagði mér að aðgerðin yrði á þriðjudag. nú jæja... (aðgerðin heppnaðist vel fyrir þá sem vilja vita!).
allavega, hvenær ætlar einhver að koma að heimsækja mig, ég er farin að sakna fólksins míns svolítið...

2 Ummæli:
Hæ EEElskan, gangi þér massa vel við ritgerðarsmíðirnar, que bello!!
Ég þykist vera á leið í vinnusálfræði í LSE í haust og er bara vel spennt sí sí :-) Eins árs master, gott stöff.
intervention er venjulega þýtt sem inngrip á íslensku s.s. að grípa inn í atburðarásina
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim