myndir frá fiji
er búin að vera í vikufríi heima í brisbane, ég held ég sé gerð sérstaklega fyrir frí og aðgerðarleysi, ég eeeelska að gera ekki neitt. rótarýliðið er ekki eins viss um fegurð aðgerðarleysis þannig að mér var boðið í australia zoo um daginn þar sem steve irwin krókódílatemjari hefur sett upp garð með öllum krúttlegu, eitruðu og banvænu áströlsku dýrunum, ég klappaði kóalabirni (þurfti að taka á öllu sem ég átti að hlaupa ekki í burtu með þetta ofurkrúttlega krúttdýr), klappaði mjúkustu kengúru í heimi, litlum krókódíl, gaf fíl epli og borðaði fullt af ís. fór svo með öðrum rótarýhjónum í lítinn strandbæ um helgina þar sem þau eiga íbúð á ströndinni, bókstaflega, maður vaknar upp við öldugjálfur og getur stokkið af svölunum beint á sandinn (mjög gott útsýni yfir sörfarana, við rótarýkonan vorum með kíkinn á lofti...). fór svo á ráðstefnu þar sem gorbachev hélt tölu, töff kall, talaði í klukkutíma um umhverfismál og pólitík og lét allt flakka, kom mér skemmtilega á óvart!
en hér er fullt af myndum frá fiji, mikið af pálmatrjám, nokkrar myndir frá partýi sem við lentum í í fijiska seðlabankanum, drukkum brjálæðislega mikið kava (drykkur sem gerður er úr rótum, hefur afskaplega vöðvaslakandi áhrif, við komum með fjögur kíló heim...) og sungum og spiluðum á gítar, ég tók þjóðsönginn fyrir hagfræðingana, kava fær mann til þess að gera ótrúlegustu hluti... þarna eru líka myndir af parísarhjóli dauðans, það var knúið af bensínmótór, það hrikti í öllum skrúfunum og það fór svoooo hratt og hélt áfram og áfram í 15 eða 20 mín, hnéin mín gáfu sig þegar við loksins skjögruðum út og MJ vinkona mín ældi strax - verð að þakka henni fyrir að bíða samt! ráð frá mín til ykkar: ekki fara í fijiskt parísarhjól, ekki koma nálægt því einu sinni :)
fyrir utan það ævintýri var ferðin frábær, fyrir tilviljun komum við við í bænum loa, en loa þýðir svart á fijisku, ég var því hin svarta (loa loa) á fiji, sem fólki fannst endalaust fyndið þar sem ég var örugglega hvítasta manneskjan á fiji... kíktum líka í indverskt brúðkaup þar sem brúðhjónin þekktust varla neitt (foreldrarnir tóku sig saman um ákvörðunina) og voru bæði frekar súr og stressuð, fengu samt fullt af bleikum púðum í brúðkaupsgjöf, ætti að hjálpa eitthvað til vonandi... allavega, kíkið á myndirnar ef þið hafið tíma, þær eru svoldið margar samt!
hendi svo inn myndum frá ástralíuferðinni á næstu dögum.
fariði vel með ykkur,
knúserí

4 Ummæli:
Hæ draumsla og gaman var að sjá myndirnar og lesa um ævintýrið á fiji ég er fegin að þú ert komin í örugga höfn í Brisbene. Bless Mútta
Ég tek ofan fyrir þér að hafa lagt í og kunnað þjóðsönginn.
oh, ég hefði gefið mikið til að fara þarna með ykkur - leit út fyrir að vera alveg svakalegt stuð -- geturðu sent mér svona Kava ;) Knús og kossar
guð en skemmtilegar myndir!
Afinn er unaðslegur, geturðu sent mér hann með dhl?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim