fimmtudagur, janúar 18, 2007

for og fen

Ah, er í vinnunni, er ekki að nenna neinu... var að skila inn fjáröflunarumsókn til nýja-sjálands um allskyns neyðargögn eftir hamfarir og stríð, þjálfun kennara á fyrstu dögum neyðarástands, vatnbrúsa og ábreiður, hamfaraundirbúningsspil, og svo framvegis. Vona að það fattist ekki að ég var algjörlega að blöffa mig í gegnum þetta alltsaman, reyndi þó eins og ég gat að lesa mér til um ´traditional coping methods’, ‘disaster preparedness planning´, ´child-focused psychosocial support´, og allt náttla mjög ‘applied to pacific needs´... blessað sé það internetið! Er svo bara búin að sitja dösuð fyrir framan tölvuna síðan ég sendi umsóknina loksins út, nú eða sit hér og stari milli þess sem ég spilli vinnudegi samstarfsfólks míns með því að draga þau út í morgunkaffi, svo hádó, og svo ís í bænum.

Er annars á leið til helgu báru í mat í kvöld, við erum stöðugt að standa hvor aðra að verki í útvatnaðri íslensku, sem er frekar vandræðalegt alltsaman þar sem við erum byrjaðar að tala eins og við höfum búið hér símasambandslausar við ísland í 20 ár, heyrst hafa frasar eins og ‘þetta er skarpur hnífur´, ´ég ætla að taka sturtu´, og uppáhaldið mitt var ´ég hef aldrei mætt henni´, plús svo almennar slátranir á orðatiltækjum.

Helgin var frábær, okkur var nokkrum skverað í, að við héldum, létta laugardagsgöngu að fallegum fossum í nágrenninu. Við vorum hress með það, lögðum af stað nýböðuð og ilmandi frá litlu þorpi, ein namibísk vinkona í flip-flops, og allir í stuði. Þá var þetta bara einhver indiana jones forar- og fenjaganga í 32 stiga hita og glampandi sól. Við óðum leðju upp að hnjám, rispuðumst á þyrnirunnum, tvær duttu ofan í forarpytt, sólgleraugu týndust, flip floppar slitnuðu í sundur eða urðu eftir ofan í leðjugröf, og þetta var bara fyrsti hálftíminn. Komum svo að brúnleitri og ansi djúpri á þar sem guttarnir sem leiðbeindu okkur sögðu að hér þyrftum við að synda yfir, bara alles klar ofan í, í fötunum og öllu, troðandi marvaðann haldandi á bakpokanum yfir höfðinu... við tók svo fenjasvæði þar sem við sukkum niðrað mitti, flæktumst í fenjagrasi, rispuðum alla útlimi og misstum skóna margsinnis. Fossarnir voru svo alveg fínir, fínt að synda og allt það, en svo þurfti að labba/detta/skríða/synda aftur sömu leið til baka... á leiðinni heim stöldruðum við við fyrir utan voða krúttlega menningarmiðstöð og þvoðum okkur upp úr tjörninni sem var þar fyrir utan, þó tjörnin hafi verið óhrein og brún þá átti hún ekki roð í okkur. Þessi ´þvottur´ var nauðsynlegur til þess að gera okkur hlutfallslega settlegri til þess að geta farið inn til að kaupa okkur bjór (vorum aldeilis búin að vinna fyrir honum), fijibúum til hóls þjónuðu þau okkur án þess að blikna. Reyni að redda myndum í kvöld hjá hb...

En hér eru nokkrar myndir frá jólum og áramótum, sorrí íslensku stafirnir fóru allir í köku...

Allavega, alltaf stuð að fá komment :)

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú ert nú meiri ævintýrastelpan, voru ekki moskítóur og krókodílar? það verður gamgan að sjá myndir.Ég vona að þið fáið hamfarastyrkinn. Bless Mútta.

21:04  
Blogger Saga sagði...

Hæhæ elsku Lóa
alltaf gaman að lesa nýja færslu frá þér, þvílíkur ævintýraheimur! Ólíkur mínum heimi þessa dagana en þó er það hálfgert ævintýri að fylgjast með henni Sögu á hverjum degi, fæ sterklega á tilfinninguna að þarna sé stúlka sem er líkleg til alls.
Hafðu það alveg ofsalega rosalega gott og svo svona persónulega myndi ég vilja sjá fleiri myndir ef þér!:)
knús og kossar frá Evu og Sögu

22:16  
Blogger Helga Bára sagði...

.. bara svona ef einhver skildi vera í vafa, þá votta ég það að frásögn Lóu er ekki nein ýkjusaga

15:45  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim