bara ein til....
ég verð að segja að mér finnst fólk ekki alveg vera nógu mikið á heimsóknarbuxunum... ég meina fiji, ætlar í alvörunni enginn að heimsækja mig til fiji? uss....
allavega, var að skila þriðju ritgerðinni í dag og sú fjórða og síðasta eftir. einhvern veginn virðist undirmeðvitundin hafa ákveðið að þrjár ritgerðir sé barasta gott og nú sé þetta búið. raunveruleikinn er hinsvegar að sú stærsta, 7000 orð, er eftir. ég á að skila á sunnudaginn, en í staðinn fyrir að lesa og skrifa jafnvel eitthvað hef ég horft á alla fyrstu seríuna af 'my name is earl', fyllt út allskyns pappíra varðandi ráðstefnu í júní í salt lake city af öllum stöðum, farið í halloween partý sem sígauni og sá börn og bleikt sólarlag í öllum lófunum, og keypt mér hjól. ég hafði mikið gagn, og einnig nokkurt gaman, af þessu öllu saman en þessi ritgerð skrifar sig ekki sjálf, mér til mikillar armæðu.
vá, ég hef eiginlega bara kvartað í þessarri færslu.... til að vega upp á móti þá verð ég að segja að lífið er dúndurgott, það er kuldabylgja í brisbane sem ég er ekkert smá hress með, allir hinir rótarý-lingarnir eru að fara á frábæra staði í sínu internshipi og stemmingin er góð, og eftir bara eina viku verð ég komin í tíu daga frí :)
fariði vel með ykkur og tékkið á sparibauknum hvort þar leynist nokkuð fargjald til fiji...
knúserí,
óm

8 Ummæli:
Ef að ekki hefði komið til húsakaupa þá væri ég svo sannarlega á leiðinni til Fiji en því miður elskan mín, þá þó svo að kafað sé djúpt ofaní vasana leynist ekkert nema meiri skuldir þar
KV Svana
elsku svanan mín,
til hamingju með húsið! hlakka til að koma í heimsókn :)
takk allavega fyrir að kíkja í vasana!
Sæl andfætla
Ég væri sko alveg til í að kíkja til Fiji eeeen fæ ekki frí fyrr en í febrúar og þá er planið að fara í Karabíska hafið. Maður getur víst ekki gert allt sem mann langar í heimi hér!
Vertu nú dugleg að færa okkur fréttir úr sólinni.
Venlige hilsen
Gunnhildur
Ég notaði alla peningana mína í flugmiða útum allan heim og skil ekkert í því að hafa ekki óvart keypt miða til Fiji..
bloggaðu nú búkolla mín, ef þú heyrir í mér!
Oh hvað ég vildi óska að Fiji væri í fjárlögum fyrir þetta ár...eða það næsta, en lítur ekki út fyrir það. Jafvel enn sorglegra þegar maður hugsar út í að ég er að spá í að flytja til Kanada, -20 gráður, á næstu mánuðum. Er hægt að flytja Fiji þangað? Work on that. ;)
Sakn sakn.
Hvað er að frétta?
Hæhó,
hélt að þessi síða lægi niðri, næ ekki alltaf að opna hana af einhverjum ástæðum.
Já, vá hvað ég væri til í að koma og heimsækja þig, mæti bara með litlu títlu, veit nú samt ekki hvað Eldar myndi segja um það...
Á ég að gefa þér einhver tips fyrir praktíkina, ég var sko einu sinni í praktík hjá UNICEF:) Tíhíhí
Hafðu það gott elskan mín
knús
Eva, 38 vikur og 3 dagar, algjör bolla
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim