laugardagur, október 14, 2006

tölvukrass, knús og ritgerðir (aftur...)


ókei, það verða allir að sjá myndina little miss sunshine, svo frábær!

í síðustu færslu talaði ég um að sitja langdvölum fyrir framan skjáinn og stara á hann... nú, skjárinn tapaði þeirri störukeppni allhressilega og ákvað að gefast bara alfarið upp. slökkti á sér blygðunarlaust. upphófust massívar hringingar í ástralska þjónustuver dell (sem er bókað í úthverfum nýju-delhí því allir sem ég talaði við voru með indverskan hreim) og þau gátu ekki sent viðgerðarmann fyrr en eftir fjóra daga. tölvan er mér allt þessa dagana, gluggi minn til umheimsins, vinnutæki, skemmtigræja, ALLT! við tóku skrýtnir fjórir dagar þar sem mér leið eins og ég væri í endalausu rafmagnsleysi, ekkert hægt að gera... magnað hvað maður getur orðið háður þessum græjum.
allavega, viðgerðarmaðurinn kom um daginn og gjörsamlega reif tölvugreyið í sundur, mér leið eins og ég væri að horfa á vin minn í hjartauppskurði, þurfti að bíta í tunguna til að spyrja manninn ekki hvort hann væri ekki örugglega lærður í tölvuskurðaðgerðum og hvort hann vissi hvert allar pínulitlu skrúfurnar og boltarnir ættu að fara aftur... ég náði þó að halda kjafti og tölvan var smíðuð saman aftur, þvílíkt móment þegar skjárinn lifnaði við á ný :)

nú erum við semsagt sameinuð á ný, ég og tölvan, og ég reyni að fríka græjuna ekki út með stari, erfitt samt þegar ég á að skila fjórum ritgerðum á næstu tveimur vikum og heilinn oft í kaffipásu...

fékk þetta myndband sent frá taílenskum krúttvini, af youtube sem hefur stytt mér þær stundir sem ég á að vera að lesa greinar. held að þetta uppátæki sé örugglega ástralskt, þeir eru krúttlegir þessir ástralir. meira knús og minna mas, má samt alveg lækka í laginu sem er undir....

annars var íslenska djammið sem ég talaði um í síðustu færslu frrrábært, drukkum og dönsuðum og sögðum sögur... svoldið erfitt að finna góða tónlist í bris en mjög auðvelt að finna góða vonda tónlist og við nýttum okkur það - til dæmis tókum við ásta all-star ljótudanskeppni við lagið sem ég veit ekki hvað heitir en viðlagið er: "everybody dance now"! eitt besta ljótudanskeppnislag allra tíma!

hver ætlar að koma að heimsækja mig í internship-inu í fiji yfir jól og áramót?

knús,
óm

6 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ stelpan mín, takk fyrir krúsulegt myndband og þú færð hugg frá mér um næstu páska. Mútta.

20:10  
Blogger Dýrið sagði...

vóvóvó, sú litla bara vöknuð úr rotinu!
Trúi ekki að þú verðir í fiji um jólin, en ógeðslega rokkstjörnulegt!
gangi þér geðveikt vel með ritgerðirnar anginn minn ég er líka stödd í slímugu lærdómssvaði sem ég gerði mér engan veginn grein fyrir hversu djúpt og seigfljótandi myndi verða.
Megaknús!
kata

19:33  
Blogger Tinnsi sagði...

Takk fyrir þetta myndband! Ég er ekki frá því að það hafi lækningamátt. Mér líður miklu betur eftir að horfa á það.

08:07  
Anonymous Nafnlaus sagði...

já fiji er vissulega smart, verst samt þú kemst ekki í aðventukaffi til mín

21:22  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Elsku vinkona. Er núna hjá vinum okkur á Ítaliu. Ciao bella;) Kem til Ástralíu í byrjun des. Ætlar þú bara í burtu? Hljómar ekki illa að fara til Fiji.
Heyri betur í þér seinna.
Knús
Ólöf

04:19  
Blogger Ólöf sagði...

takk fyrir kommentin elsku vinir og fjölskylda! verð aðeins að kommenta á kommentin: takk mamma, hlakka líka mikið til að knúsa þig, takk kata, megi ritflæðið heltaka þig, hang in there, takk tinnsi, vona að knúsmyndbandið hafi komið að góðum notum í heimadæmaveseninu, takk brynja, mig langar svakalega í aðventukaffi í nýju íbúðinni (til hamingju, vá), get ekki ímyndað mér piparkökur í fiji, og ólöf afmælisbarn, ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI að þú sért að koma til ástralíu þegar ég er í burtu, var að senda þér ammælismail.

:)

23:15  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim