tíminn líður hratt....
ég er ekkert alltof góð í þessu bloggi, alltíeinu liðinn mánuður síðan ég bloggaði síðast.... takk fyrir kommentin, gott að vita að fólk er ekki alveg búið að gefast upp á þessu :)
en til að svara bryndísi, þá vatt ég mér upp að íslensku stelpunni um daginn og jú, spurði hana hvort hún væri íslensk. hún sagði já. svo fórum við í mini-partý til vinar hennar sem er ný-sjálenskur egypti og drukkum fullt af rommi, ah, gott að þekkja íslendinga þegar maður er í stuði til að drekka eitthvað annað en hvítvín. við ásta erum svo búnar að skipuleggja íslenskt stelpukvöld á morgun þar sem drukknir verða kokteilar og slúðrað, ég hlakka svo til, hef ekki komist almennilega út í lengri tíma...
annars er ég í vikufríi núna frá skólanum, það er ef frí mætti kalla. ritgerðir, verkefni og internship-ið að skella á á næstu vikum og ég bara stari á tölvuskjáinn, get ekki ákveðið mig hvar ég á að byrja. ég skellti mér samt á ströndina um helgina með amanda (eða segir maður amöndu) vinkonu minni, gisti í krúttlegum strandbæ hjá krúttlegum rótarýhjónum frá suður-afríku, borðaði æðislegan mat og lá eins og mara á ströndinni - ahhhh.
allavega, milli þess sem ég stari á hvítan tölvuskjáinn þá gleymi ég mér í rugli á internetinu, persónuleikapróf til dæmis geta sogið tímann úr deginum, mér fannst þetta fyndið eftir síðustu færslu um nýjungagirni:
knús,
ólöf

Your purpose in life is to life freely and collect experiences. You love life - new adventures, new people, new ideas. You are very curious, and you crave novelty in all forms. You tend to make friends easily, and you enjoy the company of all types of people. In love, you are fun and even a bit intoxicating. But you won't stick around for long. You are impulsive and spontaneous - which sometimes leads you to do things you regret. Sometimes you can be overindulgent with food, sex, or drugs. You have many talents, so many that you are often scattered and unfocused.Your Life Path Number is 5 
knús,
ólöf

3 Ummæli:
Mikið er gaman að heyra frá þér stelpa!!
Greinilega nóg að gera í skóla og strandlífi. Stuð.
koma svo með meira blogg!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim