mánudagur, janúar 08, 2007

Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu!



Síðan ég bloggaði síðast hef ég:

-átt frábær jól í faðmi fjölskyldunnar hennar bernie, með nichole og helgu báru með í för. las, svaf, drakk kava á aðfangadagskvöld, var marserað í fjölskylduboð, borðaði og svaf svo aðeins meira.
-lent í því að í einu fjölskylduboðinu var heimilisviftunni rúllað út í garð til þess að vekja okkur íslendingana sem vorum hálf meðvitundarlausar af hita og raka
-lent í massa rútuárekstri á fijiskum sveitavegi þegar rútan sem við vorum í lét vaða beint ofan í skurð eftir að bremsurnar gáfu sig, gírkassinn gafst upp, fórum á tveimur hjólum yfir pínulitla brú, brenndum framhjá annarri rútu á ofsahraða á einbreiðum vegi, framhjá gili og svo ofan í skurð. Fólki var ekki skemmt og um leið og rútan var klesst og fólkið þurrkaði blóðið af bitnum vörum var bílstjórinn og meðhjálparinn laminn í klessu og sparkað út úr rútunni. Þeir flúðu af vettvangi og við þurftum að bíða í 3 tíma eftir næstu rútu.
-fengið aftur trú á ameríkana eftir að hafa hitt elddansarasirkusfjölskyldu frá oregon sem var með okkur í rútunni, þau hlaupa á stultum, spúa eldi og eru góð og sæt. Við sjanghæjuðum þau á ströndina okkar á áramótunum og þau skveruðu fram þessu líka svakalega sirkussjói.
-reynt að strengja áramótaheit, er að hugsa um að einbeita mér að því að reyna að vera skilningsríkari (ekki bara tungumálalega séð þó það þurfi líka, sérstaklega með tilliti til eins kínversks gaurs í skólanum), og svo bara almennt meira stuð! Annars er ég að fíla þessi eins orðs áramótaheit sem vinkona mín temur sér, að einbeita sér bara að einum eiginleika, þolinmæði, umburðarlyndi og það allt, í staðinn fyrir langan lista. Þolinmæði var í fyrra, veit ekki hvort það hafði nokkuð upp á sig....
-dottið inn í allo allo sem er sýnt hér á hverju kvöldi, fæ reglulega flassbakk frá barnæskunni, man eftir stærðfræðiheimadæmum frá 12 ára bekk og svo framvegis. Fyndnasta er samt að fólk er oft að vitna í þættina hér, fólk býður manni ´good moaning´ eins og lögreglumaðurinn breski, og stynur ´oh, rrrene´ eins og franska gengilbeinan... úff!
nýársknús,
óm

7 Ummæli:

Blogger Bryndis sagði...

Þú lifir svoddan ævintýralífi! Ég ætla að koma og búa hjá þér! Knús og gleðilegt ár!!

22:58  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár skvíski.

Ég pant vera með í stuðinu :) jeihei.
Allo allo eru náttlega bara snilld, ég rifjaði þá upp þegar ég var búsett í Danmörku, ásamt Bundy fjölskyldunni. Báðir þættir frábærir.
Annars ekkert að frétta frá Brissí. Leiðist soldið í þessu fríi. Hvað gerir maður í fríi?
En ég skemmti mér þá bara yfir vefsíðuskriftum þínum svo þú verður að vera dugleg að skrifa ;)
knús Ásta

22:50  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hahah svakaleg villa í fyrri athugasemd minni...
þú ert auðvitað engin skvíski heldur heljarinar skvísa
Ásta

22:52  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ draumslan mín. Hver er þessi kínverski gaur sem verðskuldar heilt áramótaheit. Múuta.

03:53  
Blogger Ólöf sagði...

hæ elskurnar,
bryndís, komdu endilega að búa hjá mér, ég er viss um að ég get reddað fleiri rútuárekstrum og strandferðum! ásta beibí, hlakka til að hitta þig í brissí, mun minna þig á þetta að vita ekki hvað þú átt að gera við frí þegar ritgerðirnar eru upp á sitt mesta! mamma, ég verð að kynna þig fyrir kínverjanum þegar þú kemur í heimsókn, hann er magnað fyrirbæri...
knús,
óls

09:02  
Blogger Dýrið sagði...

ég er ekki sátt við þetta rútuslys Lóa! Ég skora á þig að fá þér færanlegt öryggisbelti (svona hringbelti sem þú getur fest utan um sætið í heild sinni). Koma ekki bráðum fleiri myndir?
ástar og nýárskveðjur,
Kata

21:22  
Blogger admin sagði...

Ég var í kasti yfir því að lesa um rútuslysið, er ég svona kaldlynd.

Vona að 2007 færi þér gleði og glaum gamla mín.

Kv Svana sem að er að fara að flytja

08:17  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim