Fiji aftur
Er komin til Fiji, búin að vera í tæpar tvær vikur og er hin hressasta. Bý í æðislegu gömlu húsi, sítrónu- og mangótré í garðinum, róla á veröndinni fyrir framan húsið og maurar út um allt, það er hreinlega allt maurandi í maurum, það að borða er harðasprettur, ef ég legg frá mér matarbita í eitt andartak þá eru þeir mættir marserandi, mér finnst þeir bæði ótrúlega magnaðir og ótrúlega óþolandi, held að ótrúlega óþolandi tilfinningin muni vinna...
Allavega, það hefur verið hektískt að gera síðan ég bloggaði síðast, átti frábært tíu daga frí í brisbane, fór í fullt af dagsferðum, synti í ótrúlega fallegum fossum fyrir utan brisbane með nokkrum guttum sem hafa smíðað sín eigin didgeridoo og spila á ukulele, fór á ströndina, keypti allar jólagjafirnar, pakkaði og flutti út úr íbúðinni minni í brisbane. Kom svo til Fiji fyrir tæpum tveimur vikum, byrjaði strax í vinnunni og allt að gerast. Vinnufélagarnir eru æði, svo hlý og falleg öll, og bernie sem ég bý með er eins og hin besta eiginkona, eldar fyrir mig, nær í fersk blóm úr garðinum, planar helgarnar, dregur mig í indversk brúðkaup og er bara almennt líflína mín í fiji.
Pólitíska ástandið eitthvað að vinda upp á sig samt, herinn, lögreglan og stjórnvöld í tómri flækju, fréttatíminn uppfullur af snúnum fréttum um hver sagði hvað og hver er frændi hvers, stundum eins og sápuópera... erfitt að ímynda sér þetta friðsama fólk sem gengur um með blóm í hárinu og sólskinsbros í valdaránum og veseni, en þetta gerist víst á 7 ára fresti, smá spennulosun úr þessu skrýtna samfélagi þar sem helmingur fólksins er upprunalega frá fiji og hinn helmingurinn kominn af indverskum innflytjendum, og fólk ekkert mikið að mingla sín á milli úr þessum tveimur hópum. Allt á þremur tungumálum, hindi, ensku og fijisku, nett schizo alltsaman....
Allavega, reyni að láta ekki mánuð líða þangað til ég blogga næst.... takk fyrir kommentin, þið eruð æði :)

3 Ummæli:
Gvuð minn almáttugur hvað mig langar að heimsækja þig!! Maurar be damned!
Ég heyrði viðtal við forsetisráðherra Fiji á BBC sem var frekar hlægilegt, fullt af óþægilegum spurningum um heri og aðstoð frá Ástralíu og síðan:
spyrjandi: "treystir þú honum?"
forsetisráðherra: "Heyrðu hvað ertu eiginlega með margar spurningar?"
s: ha ha, þetta er síðasta!
f: ha ha, ok, já já
s: þú segist sem sagt treysta honum
f: ehh, ok
s: hvað segirðu?
bíb bíb bíb bara skellti á. Og fréttamaðurinn alveg "uu, ég held að það hafi bara verið skellt á mig."
Ég vona að þetta endi friðsamlega og fljótt. Það er svolítið óþægilegt að í hvert skipti sem þú ert í útlöndum um jólin þá eru óeyrðir og spenna í andrúmsloftinu í því landi sem þú ert í. Farðu varlega frænka mín en hafðu það jafnframt gott. þín Tinnsa
já lúsífer minn maður fer nú bráðum að tengja ólgu í alþjóðamálum við hnattstöðu þína hverju sinni!
farðu varlega fallega stelpa!
k
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim