fimmtudagur, desember 21, 2006

Jóla hvað?


Hvar er jólaskapið? Ég bara spyr... mömmu er líka spurn í kommentkerfinu hvar fijiska jólastemningin er og ég bara hreinlega veit það ekki. Það eru susum uppblásnir jólasveinar út um allan bæ, rosalega ljótt jólaskraut víðsvegar í búðum, og jólalög um jólasnjó í útvarpinu (hendi hér upp smá fiji-jólahúmor um herforingjann, svoldið líkt honum). En... það er 30 stiga hiti, brjálæðislega rakt og pálmatré út um allt, jól og suðrænar paradísareyjar bara fara ekki saman í mínum huga. Ég verð alltaf afskaplega hissa þegar leigubílstjórar og starfsmenn kaffihúsa bjóða mér gleðileg jól, þarf alltaf að spökulera aðeins áður en ég næ að svara...
en ég verð ekki skröggur lengi, verð heima hjá fjölskyldu bernie um jólin, með bernie, joshy, nichole og helgu báru (alltaf gott að hafa með sér íslending þegar halda á jól). Og það allra besta, jólapakkinn frá fjölskyldunni er kominn í hús, ég náði í hann á pósthúsið í gær, stútfullan af góðgæti og jólapökkum. Spásseraði svo með pakkann um bæinn, stolt að eiga fólk að hinum megin á hnettinum sem nennir að standa í veseni fyrir mig. Pakkinn var nú rifinn upp fyrir framan mig af fijisku sóttvarnartollvörðunum, þau tóku prik og og potuðu ofan í hann, horfðu hugsandi á súkkulaðið og piparkökurnar en ákvaðu þó að sleppa honum í gegn, ég var fegin að þeir sáu ekki mackintoshið sem ógn við lífríki fiji, ég held ég hefði þurft að meiða þau hefðu þau viljað taka það af mér! Bróðir minn er nefnilega það mikið yndi að hann vildi ekki að ég ætti mackintosh-laus jól, enda höfum við systkinin (í harðri samkeppni við frændsystkinin) sporðrennt fleiri kílóum af karamellum í gegnum árin… ég stalst í tvær í gærkvöldi og þakkaði guðunum pent fyrir að vera ekki ber að baki og bróðurlaus.

Að gleðifréttum að heiman, Eva vinkona mín var að eignast fallega litla dóttur, þvílíkt krútt! Þar er sko fæddur framtíðaraktivisti sem mun gera þennan heim betri ef eitthvað er að marka genin sem hún fékk frá foreldrunum :) Til hamingju Eva og Eldar!

Jæja, hafiði það nú yndislegt um jólin og farið vel með ykkur,
jólaknús

2 Ummæli:

Blogger Gulli sagði...

Út með jólaskrögginn, hann er búinn að skapa heljarmikið tjón...

00:05  
Anonymous Nafnlaus sagði...

gleðileg jól elsku lóa og farsælt komandi og allt það. Þetta er mjög skerí lýsing og þú verður að hóa ef þú vilt að við sendum strákana í víkingasveitinni til þín!
hafðu það gott elskan!

21:59  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim