miðvikudagur, desember 13, 2006

Allt í hers höndum....



Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar, gaman að fá komment og pósta, takk takk takk! Þetta var skrýtinn afmælisdagur, valdaránið fór loksins í gegn, herinn rak ráðherrana heim fótgangandi þar sem þeir tóku bílana þeirra, hermenn á götunum og sjónvarp og dagblöð lokuðu stuttlega þar sem herinn stóð yfir fréttamönnum og ákváðu hvað mátti og mátti ekki útvarpa... herinn er reyndar enn með puttana í fjölmiðlum og málfrelsið allhressilega heft, þeir sem tala á móti hernum missa vinnuna, nú eða fjölskyldumeðlimur missir vinnuna og sumir eru teknir inn í herstöðvarnar og látnir hlaupa og gera armbeygjur (djóklaust). allt frekar friðsamlegt samt, hlutfallslega séð...

unicef skrifstofan hélt nú smá afmælismorgunkaffi fyrir mig og krúttlegasta kallinn á skrifstofunni sem átti líka afmæli þann fimmta, ég fékk krúttlegt fiji-knús frá honum, afmælisbróður mínum, og afmælissöng frá samstarfsfélögunum. Yfirmaðurinn bauð mér og fiji krúttaranum svo í sushi í hádeginu, töluðum reyndar bara um valdarán, her og lýðræði, en sushi-ið var gott!
Slapp svo frá Suva um helgina með tveimur vinkonum sem vinna hjá UNDP, fórum á æðislega eyðieyju hérna rétt hjá, pleisið hálftómt, bara fjórir bakpokaferðalangar á svæðinu, tvö þeirra frá brisbane, sem var heppilegt þar sem ég þekki voða fáa ástrali í brisbane, þetta eru allt tómir alþjóðlegir stúdentar þarna! Það var ekkert smá gott að komast burt frá öllu þessu endalausa tali um pólitík og herinn og drekka kava og synda í sjónum. Nokkrir fijiskir guttar (sjá mynd af þeim hér að ofan, svooo sææææætir) grilluðu fisk fyrir okkur, kveiktu varðeld á ströndinni og sungu fyrir mig þann yndislegasta afmælissöng sem ég hef nokkru sinni heyrt, ég held stundum að allir fijibúar geti spilað á gítar og sungið eins og baritón englar... fékk fiji útgáfu af afmælislaginu og svo fijiskan afmælissöng, ég varð öll að mjúku toffíi að innan af ánægju.
Semsagt, allt í góðu...
Helga Bára, íslensk vinkona sem vinnur fyrir UNDP hér í Suva er dugleg að blogga, tékkið á henni ef ykkur þyrstir í meira um Fiji...!

knúserí

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hallo draumslan min og takk fyrir gott blogg ,eg er fegin ad thad er ad roast andrumsloftid a Fiji og ekki heyrist mer vera neitt jolalegt hja ykkur stollum en vona samt ad jolin verdi viburddarik hja ykkur. Mutta

08:57  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim