fimmtudagur, febrúar 01, 2007

svo þunn...

Á fiji er fólk afskaplega afslappað og tekur hlutunum létt, ‘fiji tími’ er hugtak hér sem þýðir í rauninni að fólk bara mætir þegar það nennir. Þessi léttleiki og afslöppun á hinsvegar ekki við um drykkju og djamm, hér fer fólk á barinn til þess að verða sauðdrukkið og hættir ekki fyrr en annaðhvort allt alkóhól er búið, nú eða peningurinn. Ég hef hingað til ekki tekið mikinn þátt í þessu svakalega tempói, eða þar til í gær.
Tvær samstarfskonur mínar eru að hætta og því var ákveðið að hittast í eldhúsinu og drekka bjór eftir vinnu til að kveðja þær. Sá bjór varð að heilum kassa. Þá var haldið á barinn hinum megin á götunni, og keyptur meiri bjór. Tempóinu var haldið uppi með því að drekka ‘taki’, sem þýðir að einhver kaupir könnu af bjór, fær eitt glas og svo er það glas látið ganga, mjög mjög ört, milli fólks. Svo er bara að sjá hver dettur niður fyrstur. Þriggja barna faðirinn sem kom með okkur var tempóstjórinn í gær, hann keypti endalausar bjórkönnur, tekílaskot og otaði að mér þessu bévítans bjórglasi á tveggja mínutna fresti. Ég rúllaði heim klukkan hálfþrjú, mætti ansi rykug í vinnuna núna rétt áðan en þau hin eins fersk og nýfallinn snjór, skil ekkert í þessu.... Það er ekki séns að ég geti unnið neitt í dag, uss...

hér erum við, aðeins ferskari en við vorum undir lokin... aðeins seinna...

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þar þekki ég þig elsku lósý. Bjórkassaæfingin frá New Orleans hefur ekki skemmt fyrir..eða hvað vorum við þá komnar yfir í ginið.

20:29  
Blogger Gulli sagði...

En æðislegt! ha ha, þetta minnir á "uppgrated" púrtvínskvöld!

23:48  
Blogger Bryndis sagði...

Lóa spóa ég sakna þín, hefði gjarnan viljað drekka með þér á Fiji... og þjást gegnum þynnkuna hahaha! Knús frá kaldaklaka

20:20  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim