fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Oh, Sevens....

Jæja, þrátt fyrir þynnku fimmtudagsins var ég nú hreint ekki til í að hætta stuðinu fyrst ég var komin á bragðið. Við tók löng helgi þar sem stuð og læti voru við völd. Rugby Sevens meistaramótið í Wellington var um helgina og ég verð að segja að ég er algjörlega húkked á þetta sport. Sjö menn í liði spila rugby í 14 mínútna leik, það er sjö mínútur hver leikhelmingur. Hvert lið spilar svo þrjá til fjóra leiki á dag í tveggja daga móti. Ég hef nú bara aldrei séð aðra eins menn, þeir eru straumlínulöguð tröll, sérstaklega Suðurhafsmennirnir, hlaupa eins og vindurinn milli þess sem þeir hjóla hvern í annan og slást eins og ljón. Svo situr maður með bjórinn í annarri og pizzu í hinni og æpir af spenningi, næstum um leið og leikurinn byrjar er hann búinn og allt er spurning um sekúndur.
Helgin fór þannig mestmegnis í að dást að lærvöðvum og upphandleggjum, drekka bjór, dansa aðeins, og svo náði ég loksins að skvera af ritgerðinni sem ég átti að vera búin að skila um internshipið. Það er þó ekki erfitt að mæta í vinnuna um helgar þar sem öryggisvörðurinn okkar er ógessla sætur, og sjúklega feiminn, gaman að fríka hann aðeins út með blikki.

Verð að henda inn tveimur myndum af spengilegum sevens gaurum...

10 Ummæli:

Blogger Tinnsi sagði...

mmmm, þetta er nú eitthvað annað en ameríski fótboltinn. Horfði á minn fyrsta leik á sunnudaginn og vonbrigðin voru æðisleg. Þessir kappar eru með bjórvambir niður á hné! Og maður þarf að horfa á þá í 4 tíma! Alveg hrikalega gasalegt.

07:42  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Pant koma til þín að horfa á þessa fallegu menn

Kv Svana í ásgarði

00:26  
Anonymous Nafnlaus sagði...

gott sjónarhorn

00:37  
Blogger Gulli sagði...

ÉG ER Á LEIÐINNI, AF HVERJU SÝNDIRU MÉR EKKI ÞETTA FYRR?

23:31  
Blogger Bryndis sagði...

jömmí jömmí grrrr...
Náðu þér í einn svona trylltan!
Knús og sakn!

23:55  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ég samsvara mér með þessum í rauðu sporsokkunum á efri myndinni.
Djöfull langar mig annars þangað sem skín sól og vökvar eru framreiddir með litlum regnhlífum.
Meira svona blogg!

20:46  
Blogger Gulli sagði...

Meiri stráka takk! Við höfum oft svo svipaðan smekk!

06:53  
Anonymous Nafnlaus sagði...

HÆ Lóa! varð bara að kommenta svona einu sinni. Þetta ævintýri þitt fyrir sunnan er ansi magnað. Njóttu hverrar mínútu! Geri ráð fyrir að þessi nýi íþróttaáhugi stafi ekki af sportinu sjálfu heldur þeim sem spila. hehe. knús. anna.

21:37  
Blogger Hrólfur S. sagði...

hvað er að frétta?

23:19  
Blogger Dýrið sagði...

hvað verðurðu lengi á Fiji lúsifer minn?

06:50  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim