nippon!!!
ferðasagan í punktum:
-tékkaði á mormónunum í utah, þeir voru hressir,
-salt lake city er skrýtnasta borg sem ég hef komið til, og ekkert endilega skemmtilega skrýtin, meira svona ekkert fólk, fjórir barir og já, bara almennt sleppa því að fara þangað,
-fórum sjö saman í roadtrip um utah, gátum öll gist í sama mormóna-inspíreruðu hótelherberginu (junior family hét sú svíta, venjuleg fjölskyldusvíta hýsir hinsvegar 13 manns, sem sagt manninn, konurnar fjórar og börnin átta)
-missti af flugvélinni í salt lake, þrátt fyrir að vera með boarding passann í höndunum og 20 metrum frá gate-inu, usss...,
-kom sér reyndar vel þar sem við mj, vinkona mín hvers skemmtilegheit fengu mig til að hlæja svo mikið að við heyrðum ekki uppkallið, fengum frían dag og nótt í san francisco og flug til tókýó í stað osaka,
-san fran var æði æði æði, þrátt fyrir að við vorum í sömu fötunum í einhverja 60 tíma,
-og töskurnar okkar birtust á flugvellinum í tókýó þrátt fyrir að hafa upphaflega átt að fara til osaka, ferðaguðirnir virkilega sýndu sína bestu takta,
-sjö dagar í japan = tokýó, osaka, kyoto, hiroshima, nagoya, tveggja daga roadtrip um japönsku alpana, farið í fullt af japönskum hverum, sushi, karaókí, teknar myndir í límmiðavél, hjólaferð, kímónó...., þetta er eiginlega allt hálf úr fókus samt, man mest eftir lestarstöðvum,
-fullt af myndum hér fyrir þá sem nenna
Myndin hér er því miður ekki af mér og japana sem er stærri en ég (sorrí kata, plís má ég samt fá verðlaun...?) en þessi fannst mér bara svo ógó fyndin þar sem amman þarna við hliðina á mér var minnsti japani sem ég fann, svo pínkuponsulítil að við fórum alltaf í hláturskast þegar við mættumst á ganginum heima hjá etsuko, þegar ég settist niður hefðum við getað farið í störukeppni (sem við gerðum reyndar ekki sökum brjálaðrar feimni ömmunnar...)
Allavega, fariði vel með ykkur og takk fyrir öll ógessla skemmtilegu kommentin, þið eruð best!!!
óm

9 Ummæli:
Hey, stelpa mikið er gott að heyra í þér.
Kv Svana
Gott hjá þér að fara í smá heimsreisu.
Híhíhí
þú ert veraldarvanur risi í Japan. Ég á varla orð yfir hvað þú ert dugleg að ferðast, við ættum öll að taka okkur þig til fyrirmyndar.
Ég vildi að þú værir hér því það nennir enginn að fara með mér í bíó að sjá Die Hard 4. Ojæja, það verða bara tekin ógurleg vídeókvöld þegar við erum næst í sama landi.
Þvílíkt skemmtilegar Japansmyndir og mikill metnaður greinilega lagður í skiltaskilaboð "10 minute walk (7 if run a little)" brilliant hahahha.
Traust líka að jussast um með lócalnum... ömmunni og svona.
Ást
Ævintýraferð, gaman að sjá þig svona sællega og sæta á myndunum. Mig hefur einmitt alltaf dreymt um að upplifa stemminguna með Mormónunum í Utha...Hlakka til að heyra fleiri ferðasögur;)
Ástarkveðja,
nafna
Oooohhh
Truflað gaman að lesa hjá þér ástin!
kv.
Gulli
Hallló stelpan mín og takk fyrir góða ferðasögu og fínar myndir. Er ekki gott að vera komnin heim til Bris.?Bestu kveðjur að heiman Mútta.
Ég er komin heim, er búin að borða guð má vita hvað margar pylsur, drykkjar skyr, nóa kropp og bragðaref. Allt við það sama, nema hvað það eru byggingakranar út um allt - soldið skrýtið. Allir eins nema bara 2 kg þyngri .....
Allir að dásama veðrið og hvað það sé búið að vera geggjuð sól (og allir eru brjálaðislega brúnir)... öööö er búin að vera í sól í eitt og hálft ár og gæti ekki verið meira sama... núna er rigning og mér finnst það fínt :)
Kossar og knús héðan réttu megin frá.
Magnað hvað þú ert búin að ferðast kona!
Smá öfund en maður lifir þetta alla vega í gegnum þig. Þetta hefur greinilega verið frábært ferðalag, ekki annað að sjá og heyra. Frábærar myndir!
Nú styttist aldeilis í þig, jibbý
knús og kossar
Eva og kubburinn Saga, hún stækkar í allar áttir, haha
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim