pakk
Er búin að vera með smá íslandsþrá síðustu daga, júní heima og af bloggum og emailum að dæma eru allir hressir, upp á esju, úti að djamma, eða á laugaveginum með börnin... svo er ísland nett að elta mig hérna megin, verið að sýna örninn í sjónvarpinu, með endalausu flassbakki gaursins til íslands, hraun í sólskini og brjálæðislega grænt gras, emilíana torrini með lag í auglýsingu, ferðagreinar um ísland í blöðunum og greinar um jarðhitaskólann í ástralska time, og fullt fleira sem ég man ekki. Fékk svo rauðan ópal frá silju um daginn og var næstum búin að bóka far heim...
En, er búin að skila síðustu ritgerðinni þessa önnina og er að farast úr ánægju, skellti mér á barinn með tveimur vinkonum áðan og skálaði og skálaði og skálaði. Gerði mér ekki alveg grein fyrir að ég á svo eftir að pakka fyrir ferðina á morgun... mér finnst eins og ég ætti að vera sérfræðingur í pökkun, en er það svo innilega ekki, set alltaf dótið sem ég þarf mest að nota neðst í bakpokann, þarf svo að rífa það upp aftur, og svo repeat. Hvítvínið hjálpar kannski.
Allavega, ég er að fara til japan á morgun, svooo spennt, næstum skríki af kátínu. Vissi ekki að ég væri svona spennt fyrir japan, en er það greinilega. Verð eina nótt þar, svo til bandaríkjanna á rótarýráðstefnu (þar sem rótarýbrosið á eftir að fá mikla spilun), eftir ráðstefnuna smá ferðalag um utah, tékka á mormónunum og svo aftur til japan í rúma viku í sushi, karaoke, versl, hveri, og almennt hangs. Bara eftir að pakka.
Skiliði saknaðarkveðju til íslands,
Óls.

13 Ummæli:
Æhh ekki vera með heimþrá!
Þetta er alltaf eins hérna á þessu skeri.
Mér finnst allavegana aðeins meira spennandi að hanga í Japan, USA og Ástralíu en að dröslast vikulega upp á Esju, þó að það sé svo sem ágætt.
Mig langar sjúklega til Japan.
jaaaaapan!
æði! Mig langar með... djöfull er gaman að skoða þessa mynd af þér. Þú ert svo sæt alltaf elsku lucey.
ég heimta blogg frá japan!! og skora hér með á þig að ná mynd af þér með japana sem er stærri en þú sjálf. Verðlaun í boði!
Hvert er annars planið þitt að námi loknu elskan?
Mikið er ég ánægð með Ástrali að sýna Örninn! Hann er kúl hann Hallgrímur. Klukkan er rúmlega tvö að nóttu til hér heima og björt sumarnótt úti. Það er ekki dónalegt. Var að klára Rótarýritgerð og hafði þig sem innblástur, sá þig fyrir mér brosandi þínu blíðasta Rótarýbrosi til þess að gera þetta ögn skemmtilegra. Ég vona því að ég komist héðan eftir u.þ.b. ár þótt hér sé alltaf notalegt á sumrin sama hversu lítið sumarleg þau eru fyrir utan birtuna og grilllyktina. Góða ferð gæska og til hamingju með annarlokin!
ú ísland er fínt en það verður hérna, njóttu ferðalaganna, útstáelsis í fjarlægum borgum, svo þegar þú kemur aftur til Íslands þá vittu til verður grasið örlítið grænna hinumegin með hverjum deginum sem líður
Góða ferð mín kæra, sjáumst á röltinu í SLC !! HB
Guð hvað mig langar til Japan. Og, hvers vegna ekki? Utah.
Hei fann þetta á youtube (af því að ég er að læra fyrir próf...)
http://www.youtube.com/watch?v=1rRQxpyQ2X0&mode=related&search=
Núna færðu heimþrá til Brissí :)
(held að þetta sé queenstreet þar sem hungry jacks er en það virðist vera hægt að keyrana ...)
Gangi þér vel í útlöndunum og passaðu þig að drekka nóg sake og syngja mikið í karioke
Góða ferð, skvísa! Hljómar voða spennandi, en gátu þeir ekki haft þessa rótaríráðstefnu á Íslandi í staðinn? Ferðu "hina leiðin" til USA? Hahaha! Knús og sakn sakn
ooohhh, hvað þið eruð fallegar mæðgurnar! Ég er á íslandi núna, og finnst óneitanlega vanta einhvern ormabrag á land og þjóð. En það lagast væntanlega þegar ég tek mig á í garðvinnunni.
Njóttu Japan og Bandaríkjanna. Þú ert öfundsverð kona.
oh, vá en spennandi!
Æ, fatta alltaf hvað ég sakna þín þegar ég les nýtt blogg hjá þér og verð svona glöð/leið einhvern veginn, glöð yfir öllu því góða sem er að gerast hjá báðum okkur en leið yfir hvað er langt síðan að við höfum sést...en þetta styttist!!
Hlakka til að sjá myndir frá ferðinni!!
KNús
Eva
Hæ, sá bloggið þitt hjá Héðni. Ég er svo nýbyrjuð að blogga sjálf að ég er að lesa öll önnur blogg svo ég skeri mig ekki of mikið úr. En ég sé að þú hefur fundið rétta TAKTINN.
Njóttu þín sem best
kveðja Þórunn
Ó elsku ormurinn minn!
Hver á að fara með mér á Skrekk hinn þriðja? Ég held ég fari bara ein í bíó...
Ertu komin aftur "heim"?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim