bjór og haka

úff, allar þessar óskrifuðu ritgerðir... Sit nú á skrifstofunni og reyni að ákveða hvar ég á eiginlega að byrja... allir farnir að stressa aðeins, það er komið að því tímabili á önninni þar sem maður byrjar að fatta að það það á eftir að skila sjö ritgerðum, en það eru bara fimm vikur til stefnu... nú jæja.
Síðan í síðasta bloggi hef ég:
-uppgötvað að Tasmanía er frábær eyja, borðað ógrynni af súkkulaði og góðum fisk og drukkið fullt af tasmönsku víni og bjór,
-loksins farið á rugby leik hér í Bris, og mest horft á leikmennina hita upp á hliðarlínunni,
-séð þessa gaura gera nýsjálenskt haka í fyrsta skipti ‘live’ og komist að því að stebbi var ekki svo fjarri upprunalegu útgáfunni þarna um árið hjá unicef,
-kvatt mömmu og pabba,
-uppgötvað betur og betur hvað fólkið sem ég leigi með er frábært,
-séð lélega bíómynd, perfect stranger hét hún, og ég hefði vissulega alveg getað sagt mér það áður en ég sá hana,
-dottið inn í prison break í miðri annarri seríu, algjörlega húkked,
-farið aftur í nálastungu, er meiraðsegja með nálar teipaðar við mig í þessum skrifuðu orðum, lungnaorkulínan lætur víst ekki segjast og því þarf að grípa til drastískra ráða...,
-ekki fundið fleiri kakkalakka í svefnherberginu, sem þýðir þó alls ekki að þeir séu ekki samt þar,
Reyni að setja inn einhverjar myndir bráðlega, þetta blogg er farið að líta hálf berstrípað út..

8 Ummæli:
Mér finnst þú eigir að setja inn fleiri svona rugby sevens myndir. Þær rokka ;)
Það sást til sólar hér á skerinu í gær!
Ást
Gunnhildur
mikið er þetta girnilegur bjór!
Hæ sæta,
bestu kveðjur til þín frá Shanghai, þar sem ég er stödd í sýningarferðalagi með Íd (jei!) - það er nú ekkert svo rosalega langt á milli okkar núna, eða hvað? Knús og kossar! Bíbí
Aaaaaarrrrgg! Þetta eru alveg hrikalega íturvaxnir gaurar. Ég ætla að horfa á þá aftur, Núna!
Hæ elsku Lúzílúzí
Ahh, ég kannast við það að hafa fimm vikum of stutt í að gera sjö skólaverkefni eða svo....en ég enda nú yfirleitt að versla þegar svona ber undir, eins og til að mynda í dag var ég búin að sogast inn í second hand búð og kaupa græna leður-plastkápu með gullhnöppun áður en nokkur og nokkud gat rönd við reist.
Sakna þín sæta!!!
Ást þín Ace
Koma svo með bloggupdateið lovely loozy
hvað er að ske í landi lúsífers?
jah, mar spyr sig!
hvenær kemurðu eiginlega til... evrópu?
Elsku Lóaspóa,
mikið langar mig að fara að heyra í þér og spjalla um heima og geima... ferðu ekki að koma heim bráðum? Knús, Bíbí.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim