kapp er best með forsjá...
... var málshátturinn í páskaegginu sem mamma og pabbi komu með í síðustu viku. veit ekki hversu vel það á við mig þar sem ég hef sjaldnast þjást af miklu kappi. allavega, síðan ég bloggaði síðast hef ég:
-farið í nálastungu í fyrsta sinn á ævinni, fannst það frábært og ætla nú að fara reglulega þar til ég er komin í jafnvægi, nálastungukonan las mig eins og opna bók, bara með því að finna púlsinn, magnað alveg hreint,
-farið í frábært matarboð til ástu og skúla og spilað áströlsku útgáfuna af gettu betur, komst að því að ég veit skammarlega lítið um ástralíu...
-sýnt mömmu og pabba brisbane, og heimt 2 kíló af lakkrís, tvo pakka af drakúla og nr 5 páskaegg, það er stundum mjög gott að eiga mömmu sem er eins mikill nammigrís og ég, þið getið kannski alveg ímyndað ykkur að það eru kannski 100 grömm af þessu góssi eftir, fimm dögum seinna, geri aðrir betur,
-fundið tvo kakkalakka í svefnherberginu, verst er að þetta var bara núna fyrir tíu mínútum þannig að ég býð ekki í góðan nætursvefn - sem ég er ekki að geta vanist þessum ógeðum...
Allavega, kakkalakkarnir mega eiga herbergið í viku meðan ég er í Tasmaníu, þar sem er vonandi of kalt fyrir þessi peð satans... Spurning hvað verða margir þegar ég kem til baka, framhald síðar.
fariði vel með ykkur!

6 Ummæli:
Gleðilega páska grænmúffa. Ég skildi aldrei hvað þú gast borðað mikið nammi án þess að fá illt í magan. Ég er ekki búin með hálft páskaeggið mitt númer 4 og strax orðið illt í maganum. Ekki það að ég sé að gefast upp..
Gleðilega páska!
Gleðilega páska mín kæra:)
Mikið hefur nú verið gott að fá mömmu og pabba til þín. Magnað að vera svona langt í burtu þannig að fólk er eki beint að koma í flokkum til þín. Það styttist alveg ótrúlega í þig! Síðan þú fórst hef ég átt 2 afmæli, orðið ólétt, eignast barnið, byrjað að blogga og svo margt annað...þú verður bara að fara að koma, annars er hætt við öðru afmæli og barni:)
Hafðu það rosalega gott kæra gott, Eldar sendir bestu kveðjur!! Og Saga held ég, ómögulegt að segja hvað hún er að babla..
Gleðilega Páska elskan mín
Kv Svana
hæ lóa.
ég og haukur morthens erum að hugsa til þín.
Gleðilegt sumar barasta! Er sumrinu kannski formlega lokið í suðrinu?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim