rigning
Óvenjulegt kvöld í brisbane í kvöld, það rignir og er pínu kalt. Þvílíkur léttir að heyra aðeins í veðrinu, geta verið undir teppi, hlustað á megas og lesið bók. Allt þetta sólskin og góða veður gerir mig svo stressaða, maður þarf að vera úti og nýta daginn og vesenast endalaust, allir úti að hlaupa, eða grilla í almenningsgarðinum og spila frissbí – á mjög erfitt með að meika alla þessa orku... er því mjög spennt með þessa rigningu, plús svo það að fá smá vatn í vatnsbólin sem eru öll tóm, 4 mínútna sturtur og bannað að vökva nokkurn skapaðan hlut í queensland – reyniði að fara í 4 mínútna sturtu, meira en að segja það.
Allavega, hef ekki bloggað lengi, vild’ég gæti sagt að það sé vegna þess að ég er búin að vera að vinna svo mikið í ritgerðinni minni en það er ekki raunin... skil ekkert í mér, er svakalega áhugasöm um efnið en er svo bara alltaf annaðhvort að plana ferðir, eða fara í ferðir, eða hitta fólk í kaffi og sósíalísera endalaust. Ætla nú að fara að hætta þessu og vera duglegri, strax á morgun... Er reyndar búin að fara í frábærar ferðir, keyrði til Sydney með Nathalie vinkonu minni sem var að flytja þangað frá Bris, keyrði í fyrsta skipti vinstra megin og gekk vel fyrir utan þónokkrar rúðuþurrkanir í staðinn fyrir stefnuljós og þreifingar í átt að bílstjórahurðinni í staðinn fyrir að skipta um gír, en allir enduðu ferðina á lífi sem var gott. Fór svo í frábæra siglingu um Whitsunday eyjarnar þar sem ég snorklaði í skítköldum en brjálæðislega fallegum sjónum hjá the great barrier reef, allir voða spenntir að sjá hákarla en ég öskraði inn í mér þegar fólk þóttist sjá einn, er ekki í lagi, sá þetta fólk ekki jaws? Til allrar hamingju sáum við ekki hákarl því ég hefði örugglega náð að drekkja mér af sjokki, en sáum hinsvegar krúttlegar skjaldbökur, höfrunga og gullfiska. Hér eru myndir fyrir þá sem nenna að tékka á random fólki á seglbát í mjög lekkerum marglyttublautbúningum...
Ókei, hafiði það gott elskurnar mínar!!

5 Ummæli:
Hæ,hæ !
Mikið er gaman að fá nýtt blogg og ég tala nú ekki um allar myndirnar.
Libbðu í lukku !
Kallinn
guð!
mér finnst þú geðveikt traustvekjandi í þessum kafarabúning. Alvarleg og grönn, samt svo íbyggin og greind! Ég er ákaflega ánægð með þetta lúkk og ætlast svo sannarlega til að þú verðir svona til fara þegar við loksins hittumst um jólin.
djöfull verður það annars ógeeeeeðzlega gaman.
ástakveðjur til þín litli sædjöfull.
kata
Naahahaææss myndir af siglingunni og ströndinni. Ég get bara vel skilið að þú eigir erfitt með að sitja við námið. En vertu nú dugleg gæska ;)
Kær kveðja
Gunnhildur
Þú tekur þig vel út í búningnum, það er nú fátt eitt skemmtilegra en að synda með Nemó og félögum.
Þúsund kossar,
Ólöf
Vá, ég hefði ekkert á móti smá jóga session á þessari stórkostlegu strönd, ekkert smá fallegt!
Og já, nú styttist rosalega í þig, komið haust og svona.
knús og saknaðarkveðjur
Eva
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim