mánudagur, september 17, 2007

ferðalög og rótarý

Það er eins og ég hugsi bara um bloggið þegar ferðalög eru í vændum... mikið reyndar finnst mér frábært að fá komment, er alltaf geggjað spennt að tékka!

Allavega, búið að vera massa mikið að gera upp á síðkastið. Þar sem ég er ‘bara’ að skrifa mastersritgerðina þessa önnina hef ég tekið upp á því að bjóða mig fram í allskyns vitleysu, já og svo plana fullt af ferðalögum.

Til dæmis er ég á leiðinni í 10 daga ferðalag inní miðju þessa massíva lands á föstudaginn, tékka á uluru steininum mikla (sjá mynd) sem er stjarnan á öllum áströlsku ‘collage’ póstkortunum. Við verðum fjórar saman í campervan (sem ég man innilega ekki hvað heitir á íslensku akkúrat núna). Við munum rúnta þarna um, tékka á öllum smábæjunum þar sem íbúatalan er uþb 19 manns, en hartnær helmingur þeirra er víst lið sem hefur flutt þangað til að flýja vafasama fortíð... semsagt ef krókódílarnir, snákarnir og köngulærnar ná manni ekki, þá eru það þessir 9 og hálfu í smábæjunum sem taka rest. Allavega, ef við komumst lifandi frá þessu þá ætlum við að spæna upp til darwin og tékka þar á þjóðgarði sem þykir afar fallegur. Í október förum við Sallie vinkona svo til Melbourne í 5 daga, ferð sem hefur í dag breyst úr 3ja manna trendí borgarferðalagi í 7 manna tjaldferðalag á ströndinni, og svo í nóvember fer ég með tveimur öðrum vinkonum til Nýja-Sjálands – hlakka ekkert smá til, hefur alltaf langað til Nýja-Sjálands, hef aldrei eiginlega gefið neitt í Ástralíu, þó ég sé nú mjög ánægð með að hafa drifið mig. Langar reyndar líka til Balí, finnst ég eiginlega verða fyrst maður er nú í nágrenninu....

Er svo búin að vera frekar dugleg við að drífa mig út að djamma, hélt til dæmis mexíkanska þjóðhátíðardaginn hátíðlegan með þó nokkrum tekílaskotum og vandræðalegum salsadansi. Það verður þó að segjast að þessi borg er nú ekki uppá sitt besta eftir kl. níu á kvöldin, allt hálftómt svona - svo kíkir maður út um gluggann við sólarupprás og allir í pikknikk og á línuskautum í massastuði, ekki alveg minn hringur.

En rótarý lestin stoppar aldrei, nú erum við að plana stórt seminar sem verður eiginlega útskriftarhátíðin okkar fyrir Rótarý í lok okt. Þar eigum við að kynna rannsóknir okkar, vera með interaktíva fyrirlestra, plús almennt sprell. Af ókunnum orsökum rétti ég upp hendi fyrir allskyns undirbúning, og hef nú smellt saman dagskrá, unnið að video-undirbúningi og samið söngtexta (ef fanney, helga og ása lesa þetta einhverntímann þá fá þær kannski flassbakk) – veit ekki hvernig þetta á alltsaman eftir að fara, sérstaklega þar sem ég hef nær engum tíma eitt í rannsóknina mína en mestmegnis í almenn gamanmál... hlýtur að reddast... hér er allavega mynd af rótarýliðinu mínu, fólkið sem er alltíallt fjölskylda, vinir og samstarfsfélagar.

Ókei, læt ykkur vita hvernig fer,

Knús til ykkar allra

10 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ stelpan mín, gakktu hægt um gleðinnar dyr, og gangi þér vel í öllu sem er á döfinni hjá þér. Kveðja Mútta.

23:32  
Blogger Tinnsi sagði...

Vá! Darwin-Nýja Sjáland og Bali. Þetta er hringurinn minn. Ég fór í einhvern þjóðgarð í NT sem var geggjaður. Vona að þú fáir leiðsögn um hvernig Aborigines gera hlutina, það var mjög eftirminnilegt. Og NS náttúrulega frábært enda akkúrat á móti okkur en, ég mæli ekki með því að fara til Bali. Allavegana fyrir, uhh, 15 árum, var það frekar sorglegt fyrir mig að sjá hvernig massatúrismi fer með samfélag. Kannski er þetta gott case-study. Eða kannski er betra að hafa eitt samfélag sem sér um túristana og þá eru önnur látin í friði á meðan. Góða skemmtun í öllum ferðalögunum og til lukku með að vera að útskrifast, frænkuknús, Tinnsa

02:40  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ert þú allsber á rótarímyndinni?

22:54  
Blogger Bryndis sagði...

Hæ sætust, það er greinilega mikið rótarý-stuð á minni! :p Bestu kveðjur til Ástralaralíu (og allra hinna staðanna sem þú ferðastum!)
Bestu
Bryndís

01:51  
Blogger Ólöf sagði...

ha ha, jú, kviknakin þarna - svoddan andsk. hiti alltaf...

14:42  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er greinilega "aðeins" of sein að lesa þessa færslu og löngu búið að ræða það sem ég ætlaði að kommenta: einmitt hvort þú værir á afmælisfötunum þarna í rótarýfansinu. ÞAR ÞEKKI ÉG ÞIG :)
ps. er komin dagsetning á heimkomu? Fyrir jól ekki satt, jú jú jú.
Hlakka mjöög til
Ást
Ace

07:03  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Búið að skella saman í Rótarý-söngtexta?!? Þokkalegt flassbakk hér já. Það má alltaf taka Lille-Ole-í-skogen á þetta ef annað bregst. Það væri líka sterkt hjá þér að grípa í gítarinn ;-) Ekki það að ég dragi nokkuð í efa að þetta sér talent-laus hópur, ekki með þig í forystusveitinni og frjótt ímyndunarafl. Líst mjög vel á áherslur þínar á ferðalög. Ritgerðin hlýtur að reddast. Er þetta nám svo bara virkilega að klárast á allra næstu vikum? Spennó. Góða skemmtun í restinni! Hlakka til að sjá þig hér heima.
Faðmlög, Fanney

14:50  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ sæta,
gangi þér vel á þessum lokaspretti, eða má ekki taka svo til orða?
Hvenær er þín annars von?
knúsEva og Saga sem bara stækkar

04:27  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvenær ferð þú til Íslands? Ég fer 10. des. Held ég hafi þá ekki séð þig í ca þrjú ár

19:19  
Blogger Unknown sagði...

Elsku Lóa, datt í hug í miklu bríeríi að kíkja á bloggið þitt. Maður hefur svo mikinn aukatíma svona í fæðingarorlofinu. Ég var að frétta að þú værir að fara að koma heim, mikið roooosalega verður það góð og falleg viðbót við mannlífið hér á klakanum.
Hlakka til að sjá þig, Eyrún Ball (nýbökuð móðir)

05:00  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim