eldingar og allt að gerast...
jæja, ég er aftur komin í blogga einu sinni í mánuði fílinginn, það gekk ekki betur en svo!
en nú er ég búin með aðal kreisíið í vinnunni, kláraði loksins megnið af viðburðunum sem ég átti að plana og get núna um frjálst höfuð strokið.
fyrir áhugasama (sem er kannski bara mamma) þá voru þessir sérstaklega viðburðarríku viðburðir dagur afríska barnsins með skrúðgöngu, spurningakeppni, hæfileikakeppni, barnaráðstefnu, barnablaðamannafundi og fundi barna með forsetanum, og svo alnæmisforvarnarherferð Manchester United, önnur skrúðganga, blaðamannafundur, viðburðir sama daginn í fjórum bæjum í Síerra Leóne, upptaka á skilaboðum frá fótboltastjörnu þeirra Síerra Léonebúa, Mohamad Kallon, ásamt fótboltaleik, útbreiðslu myndbandsskilaboða frá Ryan Giggs, Rio Ferdinand og Patrice Evra og uppsetning veggspjalda (æi þarna billboard, það er ekki veggspjald er það?) út um allt land.
Að skipuleggja svona massa í Síerra Leóne er búið að vera eins og að setja heilann í matvinnsluvél... við unnum með heilbrigðisráðuneytinu, menntamálaráðuneytinu og National AIDS Secretariat, en allar þessar stofnanir eiga ekki aur - þá er ég að tala um rafmagnsleysi, ekkert blek í prenturunum, ekkert bensín á bílana, ekki peningur fyrir símreikningnum, ekkert! þannig að hér eru send bréf til allra því það eru svo margir sem ekki eru með email, til dæmis grunnskólarnir, ráðuneytin og NGOin - en ef það er ekki til blek í prentaranum og ekkert rafmagn þá er allt stopp. En einhvern veginn gekk þetta alltsaman upp og viðburðirnir gengu allir dúndur vel. Verst ég er að fara heim nú þegar ég hef loksins kynnst öllu þessu skemmtilega fólki...

en að öðru, haldiði að ég hafi ekki orðið fyrir eldingu í gærmorgun, eða svona óbeint... regntímabilið er byrjað með rigningu sem er meira eins og veggur en dropar og endalausum þrumum og eldingum. allavega, ég er í sturtu, bara hress, held um sturtuhausinn því hann er náttla bilaður og þá laust eldingu í húsið og ég fékk þennan líka þvílíka straum, ekki beint það sem maður vill þegar maður stendur í vatni haldandi í málmsturtuhaus... allavega, víða leynast hætturnar í freetown :)
krúttleg krakkakrútt með flyerana okkar í skrúðgöngunni á laugardaginn
sætu fóltboltastrákarnir sem skipulögðu skrúðgönguna með okkur

hér eru nokkrar myndir:
krúttleg krakkakrútt með flyerana okkar í skrúðgöngunni á laugardaginn
sætu fóltboltastrákarnir sem skipulögðu skrúðgönguna með okkur
svo rigndi... (hvar er valli?)
Varð að smella þessarri með, fjölskylda sem við löbbuðum fram hjá á laugardaginn...
Reyni að setja inn fleiri myndir á næstu dögum...
Takk kærlega fyrir fallegu kommentin, ég verð alltaf svo gífurlega kát að sjá komment :)

5 Ummæli:
alla malla, gott að þér varð ekki meint af eldingunni dúlli minn.
Svarthvíta hetjan mín hvernig ert þú í lit,segir í ljóðinu. Gott að þú slappst með skrekkinn í sturtunni.Gaman að verkefnið gekk vel hjá þér. Kveðja Mútta.
það er ekki hægt að stækka "hvar er valli" myndina og ég kúgast hér úr ófullnægðu keppnisskapi!!! Setja inn stóra "hvar er valli" mynd fyrir kötu sína.
Djöfull eru þetta annars töff viðburðir sem þú ert búin að vera að skipuleggja...
Hvenær kemurðu heim, hvenær kemurðu heim, hvenær kemurðu heim?
Kata
Valli er númer átta frá hægri.
Hljómar spennandi sem þú ert að fást við. Hlakka til að fá þig heim.
Knús Óls
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim