miðvikudagur, maí 28, 2008

punktablogg

jæja... ég er með ógnarlangan to do lista fyrir hvern dag í vinnunni, mestmegnis langur listi yfir alla fundina sem ég þarf að mæta á, og hvern einasta dag færi ég 'blogga' punktinn yfir á næsta dag! ég er ekki mikið náttúrubarn í bloggmálum það verður alveg að segjast eins og er!

því er kannski best að hafa bara klassíska punktabloggið í dag...
semsagt, í síerra leóne hef ég:

-eignast furðulegt samansafn af vinum; það er darren, 25 ára princeton séníið sem er að kenna mér að juggla, paul, fimmtugur jarðfræðingur sem vinnur fyrir illt námufyrirtæki, val, fimmtugur fyrrverandi sérsveitarmaður í breska hernum sem kann örugglega að drepa 10 manns með einni bréfaklemmu, francesca, 35 ára ítölsk bomba sem á bleikt golfsett og dreymir um new york og svo auðvitað hún ingunn mín sem er að fara í dag! svo eru fleiri á hliðarlínunni, það hefur reynst svo frekar erfitt að vingast við samstarfsfólkið utan vinnutíma, en ég gefst ekki upp þó móti blási.

-unnið og unnið og unnið. venjulegur dagur er þannig að ég mæti í vinnuna klukkan átta, fer heim klukkan hálfsjö, borða með einhverjum af ofangreindum vinum og venjulegast vinn ég eitthvað aðeins eftir mat meðan ég horfi með öðru auganu á sjónvarpið... spennandi ekki satt?

- drepið ótal marga kakkalakka, þurfti til dæmis að veiða einn upp úr niðurfallinu í dag, ég er öll að braggast og alveg hætt að öskra (ok næstum því...)

-litið í eigin barm, það er eitthvað við þetta land sem virkar eins og risastór spegill á manns innri mann, hvernig getur maður gengið fram hjá sjúkrahúsi þar sem börn eru að deyja af viðráðanlegum orsökum og farið svo í súpermarkaðinn og keypt rándýrt súkkulaðikex sem mann langar einu sinni varla í, hvernig getur maður veifað þessum hrikalega fátæku börnum og fundist þau svo krúttleg en svo bara labbað í burtu meðan peningar safna vöxtum á bankareikningnum manns? stundum þyrmir svo hrikalega yfir mig hérna að það nær ekki nokkurri átt...

-lesið mjög góða bók sem heitir shadow of the sun, mæli með henni, eftir pólskan blaðamann, hann spurði sjálfan sig sömu spurningum og að ofan og actually gerði eitthvað í því...

-svo hef ég nú líka alveg verið hress, farið á pub quiz og út á barinn og svona :)

allavega, vona að þið séuð öll að njóta sumarsins heima, hlakka til að sjá ykkur öll við heimkomu :)

knúsið!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Það verður gott að koma heim í verndað umhverfi þar sem er bara ein og ein suðandi hunangsfluga. Hafðu það gott stelpan mín Mútta.

00:07  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ertu komin með rastafléttu?

massa dugleg - stolt af þér.
love
ace

08:56  
Anonymous Nafnlaus sagði...

heyrðu!
ekki veit ég nú betur en þú sért sífellt að gera þitt lúsífer minn til að reyna að bæta þennan heim.
Vera þín í honum sem slík bætir hann svo og öll þín frábæru störf.
Ég er eilíflega stolt af þér.

ps. farðu nú að drullast hingað heim í miðnætursólina.

Kata

03:48  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Elsku Lóa,
meyra kellan hérna sem bara tárast við að lesa orð þín, hmm, kannski eins gott að ég haldi mig heima, í kreppunni miklu þar sem fólk neyðist til að selja húsbílinn sinn, uss, ég segi sendum fólkið í mánaðarferð til þróunarlanda og svo skulum við tala um kreppu og erfiða tíma. Er svo glöð að vita af fólki eins og þér sem er endalaust að reyna. Ekki missa móðinn!!
Risaknús frá mér og Sögu sætu

19:54  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim