laugardagur, maí 10, 2008

myndir

þetta er búin að vera alveg kreisí vika... ég hef eiginlega ekkert gert annað en unnið síðustu daga. fór reyndar í mjög kósí mat til ingunnar og engilberts sem búa hér í freetown, þau eru algjör lífsbjörg :) held ég setji bara inn nokkrar myndir frá ferðinni með ítölunum í staðinn fyrir að blogga um to do lista, fundi og skrifstofudrama...! þetta eru allt myndirnar hans luca, fancy ljósmyndarans:


Þessi er tekin í þorpi lengst í norðurhluta síerra leóne

hér erum við annita í mögnuðu hverfi við ströndina í freetown, það var sólarlag og allir fiskimennirnir voru að koma inn með bátana sína og selja aflann.

Að sjálfsögðu rúllaði maður þessum ítölum upp í pool, vonlaust lið...
þessi stelpa var æææði, mariam heitir hún og við hittum hana með mömmu sinni þar sem við vorum að heimsækja sjúkrahús - algjör lítill nagli.

góða helgi!

6 Ummæli:

Blogger Silja sagði...

flottar myndir Loa, eg er graen af ofund! Skemmtu ther vel

10:49  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Skemmtilegar myndir!! getur þú ekki komið heim með "ættleitt" barn?

21:45  
Anonymous Nafnlaus sagði...

þú ert alltaf svo falleg vinkona jafnt að utan sem í sálinni

Kv Svana

22:27  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég gæti alveg hugsað mér eina sæta ömmustelpu. Fínar myndir takk takk. Mútta

07:55  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég skal vera skemmtilega frænkan, ég er með mömmu þinni í þessu

KV Svana

04:02  
Anonymous Nafnlaus sagði...

saknisaknisakn!
kata

20:25  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim