verðlaun og kveðjur
ég tilkynni hér tvö verðlaun. fyrst er það orri sem fær verðlaun fyrir að vera fallegasti frændinn, verðlaunin er eins mikið knús og hann getur höndlað og bjór/kaffi og kökur eftir smekk. síðan er það bunny sem rúllaði upp valla keppninni, í verðlaun fær hún enn einn borðdúkinn/gagnslausan minjagripinn frá mér í safnið, bíddu spennt! :)
en nú eru kveðjurnar byrjaðar hér í freetown, eins og hvað ég þjáist þegar ég þarf að kveðja fólk... oj bara hvað ég þoli ekki kveðjustundir. átti kveðjuhádegismat með vinnufélögunum í dag, með tilheyrandi ræðuhöldum og svo náttla viðtökur á afrísku átfitti sem ég mun klæðast í leifsstöð á fimmtudaginn. allavega, eftir allar þessar ræður og kveðjur á ég samt eftir að vinna á mánudaginn og þriðjudaginn, nett skrýtið svona en ok...
ég er alveg á báðum áttum með að fara heim í næstu viku, ég finn fyrir massívri löngun að upplifa pínu íslenskt sumar þar sem ég sá síðast júlí á íslandi 2005 og það er bara allt allt of langt síðan. en svo finnst mér ég vera algjör lúser fyrir að nýta ekki tækifærið og ferðast um vestur-afríku fyrst ég er nú hérna (plús það hversu mikið mig langar til þess að vinna landakeppnina okkar stebba og önnu)... talandi um lúxusvandamál!
jæja, ég ætla að hætta áður en ég byrja að skrifa um fátæktina og allt það, best að opna ekki fyrir þær flóðgáttir!
góða helgi!

2 Ummæli:
Ég,(tún)fíflarnir, eden, austurvöllur, laugarnar og Boston erum massa spennt að fá þig heim í hagann!!
loove
ace
Ólöf, ekki svona. Þú skoðar restina af Afríku seinna, farðu að drífa þig heim, við söknum þín hér á Klakanum!
knús yfir hafið
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim