þriðjudagur, júlí 15, 2008

kroo bay

þá er það næstsíðasti dagurinn í vinnunni... það verður svo erfitt að fara héðan, þetta land alveg læsir sig í hjartað á manni.

var að fá þessa frétt senda frá samstarfsmanni mínum: http://www.telegraph.co.uk/earth/main.jhtml?xml=/earth/2008/07/04/ealeone103.xml, fjallar um kroo bay sem er versti staðurinn í heimi til þess að fæðast, dánartíðni barna þar er hærri en nokkurstaðar í heiminum. kroo bay er 10mín í burtu frá þar sem ég sit akkúrat núna - auðvitað ætti ekki að skipta máli hvort slík þjáning sé 1000 km í burtu eða 1 km en það gerir það samt, vitandi að þessi börn þurfi að lifa svona hérna rétt hjá kýlir mig algjörlega í jörðina, og núna þegar ég veit að ég á eftir að vera á heathrow á fimmtudaginn, rosa kát með að fá gott kaffi meðan ekkert breytist í þeirra lífi þá vakna upp allar þessar spurningar um bræðralag og manngæsku, og upp kemur spegillinn á minn innri mann.... úff! svona rúllar þetta allt rúnt í hausnum á mér, og hjartanu og sálinni og maganum...

en, 180 gráður, að öðru! átti frábæra helgi þrátt fyrir þessa existensíalísku heimskrísu (sem bara bætir á krísuna), fór út að dansa á laugardaginn í þvílíku stuði, fékk svo tvo samstarfsfélaga í heimsókn kl níu á sunnudagsmorgun (þeir ætluðu djóklaust fyrst að koma klukkan átta). þeir eru aluppáhaldskallarnir mínir hér og það var ekkert smá gaman að fá þá heim þar sem mér hefur illa tekist að fá lókal liðið í geim utan vinnu - það var þá síðustu dagana sem það loksins tókst. fór svo á ströndina seinna á sunnudaginn með paul, námujarðfræðingnum, og tveimur öðrum brezkum köllum, UN peacekeeping dúddar, og algjör drykkjutröll, held þetta hafi endað í sex bjórum og hálfri hvítvínsflösku, netti höfuðverkurinn í dag.

en allavega, myndavélin tók upp á að bila, en ég ætla að setja inn myndir þegar ég kem heim í almennilegt netsamband!

hlakka til að sjá ykkur við heimkomu, grill, göngur og barinn!

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hlakka til að sjá þig og draga þig í göngutúr í hrauninu með heitt á brúsa.

19:46  
Blogger Afríkudrottningin sagði...

jójójó... hárrétt ákvörðun að vera ekkert að þvælast um vestur afríku. uss. Vertu bara velkomin í íslenska rigningarsumarið (sem þó hefur átt nokkra góða spretti). Við söknum þín öll á kontórnum. knúsílús. anna.

21:12  
Blogger Tinnsi sagði...

úff, þessar myndir frá kroo bay eru ekki fallegar. Vona að þú hafir náð að ýta peðinu einn reit áfram.

07:48  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim